4. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 6. júní 2011
Mættir eru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir (Strandabyggð), Andrea Björnsdóttir (Reykhólum), Jenný Jensdóttir (Kaldrananeshreppur), Rósmundur Númason (Strandabyggð). Fulltrúar Árneshrepps tilkynntu forföll.
Fundargerð ritaði: Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri.
Dagskrá fundar:
1. Arnheiður Jónsdóttir, verkefnastjóri Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðra mætir á fundinn og kynnir starf sitt og hlutverk byggðasamlagsins.
2. Félagsmálastjóri kynnir fyrirhugaðan fund prestafélag og félagsmálastjórum Vestfjarða um aðstæður fólks og aðbúnað í kjölfar efnahagskreppunnar sem haldinn verður þann 24. júní 2011 á Hólmavík.
3. Trúnaðarmál
Niðurstaða skv. Bókun í málinu færð í trúnaðarbók,
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 16:20