Velferðarnefnd Stranda og Reykhóla, 02.04.20
42. fundur í Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps haldinn fimmtudaginn 02.04.2020, kl 14, í gegnum fjarfundabúnað.
Á fundinn mættu:
Ásta Þórisdóttir (Strandabyggð), Íris B Guðbjartsdóttir (Strandabyggð), Jóhanna Ösp Einarsdóttir (Reykhólahreppi) Jenný Jensdóttir (Kaldrananeshreppi). Hrefna Þorvaldsdóttir (Árneshreppi) boðaði forföll og gat varamaður ekki mætt í hennar stað.
Guðrún Elín Benónýsdóttir, félagsmálastjóri, ritaði fundargerð.
Dagskrá
- Viðbragðsáætlun velferðarnefndar vegna covid-19
- Umsókn um fjárhagsaðstoð
- Önnur mál
- Hjólasöfnun Barnaheilla
- jafnréttisnefnd
- Viðbragðsáætlun velferðarnefndar vegna covid-19 – Farið yfir málefni félagsþjónustunnar m.t.t. covid-19. Hver staðan er í dag, til hvaða ráðstafana hafi verið gripið og hvað sé framundan.2Umsókn um fjárhagsaðstoð
- Fært í trúnaðarbók
- Önnur mál
- Hjólasöfnun Barnaheilla – bréf frá Barnaheillum kynnt.
- Jafnréttisnefnd – Velferðarnefnd telur að hlutverk jafnréttisnefndar sé á þann hátt að það samrýmist ekki hlutverki velferðarnefndar en brýnt sé að sveitarstjórnir skipi jafnréttisnefnd.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 15:35