A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Skólasetning Grunnskólans á Hólmavík

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 18. ágúst 2023


Skólasetning Grunnskólans á Hólmavík fer fram mánudaginn 21. ágúst klukkan 13:00 á fótboltavelli við grunnskólann.
Skólastjóri stýrir skólasetningarathöfn og kynnir ýmsa þætti skólastarfsins skólaárið 2023-2024. Að því loknu býðst gestum að ganga um nýrri hluta skólahúss og skoða framkvæmdir og fá yfirlit yfir það sem búið er að gera og hvað er framundan.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. ágúst, skólaakstur hefst sama dag.

 Nemendur, fjölskyldur og öll áhugasöm eru boðin velkomin á skólasetningu.

Auglýsing um skipulag – Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. ágúst 2023


Eftirfarandi tillaga að breytingu deiliksipulags var samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar þann 8. ágúst 2023 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Breyting á deiliskipulag Nauteyrar – lóð 8 fyrir aðveitustöð.
Breytingin felst í að skilgreind er lóð 8, ný 900 m2 lóð fyrir aðveitustöð við landtöku rafstrengs.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, frá og með 18. ágúst til 29. september 2023 og er aðgengileg hér og í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar https://skipulagsgatt.is/issues/491

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 29. september 2023.

Skila skal athugasemdum á netfangið skipulag@dalir.is eða gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á slóðinni https://skipulagsgatt.is/issues/491

Skipulagsfulltrúi Strandabyggðar.

 

Baskneskir tónleikar í Djúpavík - kynning á Baskasetri

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. ágúst 2023
Habia trio
Habia trio
« 1 af 2 »

 

Í Djúpavík verður miðvikudaginn 23. ágúst kynningarviðburður Baskaseturs: tónleikar tveggja hljómsveita frá Baskahéruðum Frakklands: HABIA tríóið og Txalaparta dúóið flytja baskneska tónlist í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík miðvikudaginn 23. ágúst kl. 13.00.  Denis Laborde hjá Haizebegi hátíðinni í Bayonne flytur erindi um baskneska tónlist á ensku. Elfar Logi Hannesson leikles á ensku hluta úr leikriti eftir Tapio Koivukari um Ariasman sem verður frumsýnt á næsta ári. Kynntur verður fyrsti áfanginn að Baskasetri þar sem smiðir frá Albaola á Spáni leiðbeina við að smíða baskneskan léttabát, "txalupa". Grunnskólanemar frá Hólmavík og Drangsnesi koma að uppsetningu á verkstæði í gerð hljóðfæra úr rusli. Leikið verður á "txalaparta", ásláttarhljóðfæri, sem verður gert á staðnum.

Baskasetur er samstarfsverkefni Baskavinafélagsins, Háskólaseturs Vestfjarða, Albaola á Spáni, Haizebegi í Frakklandi og Hótels Djúpavíkur sem hýsir væntanlegt Baskasetur. Verkefnið hlaut styrki frá Creative Europe, Brothættum byggðum á vegum Byggðastofnunar og Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Nánar hér:

https://www.facebook.com/profile.php?id=100092585373577

Viðvera fulltrúa sýslumanns

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. ágúst 2023


Skúli HakimThoroddsen staðgengill sýslumannsins á Vestfjörðum verður til viðtals á sýsluskrifstofunni á Hólmavík  fimmtudaginn 17.ágúst nk.

Griðingarmál í Strandabyggð

Þorgeir Pálsson | 11. ágúst 2023

Kæru íbúar Strandabyggðar

 

Vegna deilna um girðingarmál hér í sveitarfélaginu, hefur verið tekin sú ákvörðun, að framvegis sjái sveitarfélagið einungis um að halda við og passa að girðingin í landi sveitarfélagsins sé í lagi. Sveitarfélagið fái þá viðkomandi styrk svo lengi sem Vegagerðin, sem tekur út girðinguna, gefi henni þá einkunn að hún standist úttekt. 

Bændur og landeigendur eru hvattir til að girða meðfram veginum og sækja um bæði stofnstyrk og svo viðhaldsstyrk að því loknu. Með því móti vinnum öll saman að því markmiði að minnka lausagöngu búfjár við þjóðvegina.

Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón