Laust starf í áhaldahúsi
Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst. Upplýsingar um skipulag og launakjör gefur Sigurður Marinó Þorvaldsson forstöðumaður 894-4806
Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð
Heimaþjónusta er margvísleg aðstoð við heimili, fjölskyldur og einstaklinga og tekur til eftirfarandi þátta:
Aðstoð við heimilishald
Félagslegur stuðningur
Aðstoð við persónulega umhirðu sem ekki er í verkahring heimahjúkrunar
Tilsjón og aðstoð vegna umönnunar barna og unglinga þegar um erfiðar fjölskylduaðstæður er að ræða sbr. 24.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002
Heimsending matar
Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins.
Nánari upplýsingar veitir Soffía Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri í síma 451-3510 eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2023.
Umsóknir sendist á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is
Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftir tónlistarkennara með deildarstjórn til að kenna á ýmis hljóðfæri auk undirleiks, kenna tónfræði, stjórna barnakór og rokkhljómsveit eldri nemenda og tónmennt á yngsta stigi.
Fullt starf 100% er í boði frá 1. ágúst 2023 en hlutfall deildarstjórnunar fer eftir stigum skóla.
Tónskólinn á Hólmavík er samrekinn Grunn-, leik- og tónskóli og er vel búinn hljóðfærum, staðsettur í Grunnskólanum á Hólmavík. Kennt hefur verið á eftirfarandi hljóðfæri: blokkflauta, þverflauta, píanó, gítar, bassi, ukulele, fiðla, trommur, trompet og saxófónn. Áhersla er lögð á fjölhæfni í hljóðfæraleik, samspil af ýmsu tagi, fjölbreytni í tónlist og framþróun í kennsluháttum. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi
Helstu verkefni og ábyrgð.
Viðkomandi þarf að geta kennt nemendum grunnskólaaldri á fjölbreytt hljóðfæri. Einnig þarf viðkomandi að geta leikið undir með nemendum skólans. Kostur er ef viðkomandi getur kennt á mörg hljóðfæri og tónfræðigreinar, stjórnað barnakór og hljómsveit og kennt tónmennt.
Hæfniskröfur.
Háskólapróf í tónlist æskilegt eða tónlistarnám sem nýtist í starfi. Reynsla af kennslustörfum og meðleik æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum. Frumkvæði í starfi. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst n.k
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (FT eða FÍH).
Ferilskrá og kynningarbréf sendist í tölvupósti á netfangið: skolastjori(hja)strandabyggd.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri.
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps óskar eftir að ráða starfsmann til að hafa umsjón með atvinnuúrræðinu „Atvinna með stuðningi“ á Hólmavík í júní, júlí og ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.
Umsóknir sendist til Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar veitir Soffía í síma 451-3510, fyrirspurnir má einnig senda á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is
Starfsfólk óskast í vaktavinnu í skammtímavistun hjá 16 ára stúlku á Reykhólum. Mjög skemmtilegt og krefjandi starf í fallegu og rólegu umhverfi.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða tvo sumarstarfsmenn í starf á Reykhólum við að sinna stuðningsþjónustu hjá 16 ára stúlku, í júní, júlí og ágúst. Vinnutími væri mánudaga til föstudaga frá 9:00-16:00.
Mjög skemmtilegt og krefjandi starf sem gæti hentað vel fyrir vinkonur eða par. Reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023.
Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík. Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is.
Strandabyggð auglýsir eftir umsækjendum fyrir afleysingar- og sumarstörf, athugið að sum störfin gætu hafist fljótlega. Í umsóknarskráningunni er einnig að finna umsókn um vinnuskóla fyrir ungt fólk 13-17 ára. Minnum á að umsóknarfrestur rennur út á miðnætti á þriðjudaginn 28.3.2023.
Íþróttamiðstöð, tjaldsvæði, vinnuskóli og sumarnámskeið
-Umsjónaraðili með Íþróttamiðstöð- og tjaldsvæði, afleysing fyrir íþrótta- og tómstundafulltrúa v. sumarleyfis
-Íþróttamiðstöð og tjaldsvæði. Sumarstarfsmenn í sundlaug og tjaldsvæði. Starfsmenn þurfa að ná kröfum sundlaugarvarða og hafa náð 18 ára aldri. Nánari upplýsingar um starfið hér
-Sumarnámskeið – Umsjón með 2-3ja vikna námskeiði í júní, nánari lýsing hér
-Vinnuskóli og umhverfisfegrun – Umsjón með vinnuskóla, stærsti hluti starfs í júní, nánari upplýsingar hér
Eignasvið, áhaldahús og Sorpsamlag
-Áhaldahús. Um er að ræða almenn verkamannastörf í Áhaldahúsi við slátt og viðhald eigna. Nánari upplýsingar hér
-Höfn. hafnarvigtun og skráningu afla og fl. vigtarréttinda krafist, almenn verkamannastörf
-Sorpsamlag. Um er að ræða vinnu á sorpbíl og gámabíl meiraprófs krafist ásamt lyftararéttindum (vinnuvélaréttindi)
Velferðarþjónusta
-Umsjón starfsmanna í atvinnu með stuðningi. Um er að ræða 1 stöðugildi hjá Félagsþjónustu frá byrjun júní fram í miðjan ágúst
-Liðveisla barna. Hlutastarf hjá Félagsþjónustu, nánari upplýsingar hér
-Heimaþjónusta. Hlutastarf hjá Félagsþjónustu. Nánari upplýsingar hér
Fræðslustofnanir
-Leikskóli. Um er að ræða afleysingarstörf á leikskóla frá maí og fram ágúst. Leikskóli er lokaður 27.júní-8. ágúst
Stjórnsýsla
-Skrifstofa afleysing. Um er að ræða afleysingu á skrifstofu með möguleika á framlengingu starfs, æskilegt að starf hefjist sem fyrst. Hlutastarf
-Skjalavarsla átaksverkefni. Um er að ræða skönnun skjala frá stofnunum og vistun í skjalakerfi, sveigjanlegur vinnutími. Hlutastarf
Hægt er að sameina bæði störfin í eitt fullt starf eða sækja um minna hlutfall
Umsóknarfrestur er til miðnættis 28. mars 2023 og sótt er um (apply here) hér gegnum google forms eða á eyðublöðum sem finna má hér
Ensk útgáfa:
Strandabyggð Municipality, announces the following vacancies:
Sports-center, camping site, summer school and children summer courses.
• We seek a person to manage the sports-center and camping site, in the absence of the Sports- and Recreation Manager of Strandabyggð
• We seek summer assistance at the sport-center and camping site. All applicants must be 18 of age and have passed the Swimming pool guards tests
• Children summer courses. We seek a person to supervise and control the summer courses, run by the municipality during 2–3-week courses in June
• Summer school and environmental projects. This job is scheduled for June.
Municipality Property Center
- Strandabyggð is offering a position as a general worker at the Municipality Property Center
- Tasks will include, but are not limited to; general work, gardening, property repair, catch registration at the harbor (special licenses required) and garbage and waist collection, sorting and packing (extended driving licenses and others required).
Social services
- Various services required at the Strandir, Reykhólar Social Service Center
Educational Institutions
- Kindergarten: Temporary position from May – August. The kindergarten is closed from June 27th to August 8th
Municipality office
- Main office. Temporarily positon as general office clerk with possibility of extention. This position is open now
- Filing and sorting. This positon requires scanning of documents, filing in the Municipality filing system. Flexible hours. Part time position.
Both positions can, given all creitera are met, be combined for the same person.
Leikskólinn Lækjarbrekka
Staða leikskólakennara
Staða leikskólakennara, almennt starf á deild. Starfshlutfall er 100% og vinnutíminn frá 8:00-16:00. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Leikskólinn Lækjarbrekka tilheyrir sameinuðum leik-, grunn- og tónskóla í Strandabyggð og starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla og leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans.
Uppeldisstefnan er jákvæður agi, skólinn er grænfánaskóli og unnið er að innleiðingu stefnu um heilsueflandi skóla.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í viðeigandi skólagerð
• Góð íslenskukunnátta
• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hreint sakavottorð
Laun eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til 6. janúar, 2023.
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri gefur upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum ásamt ferilskrá, afriti leyfisbréfa og upplýsingum um meðmælendur netfang: skolastjori@strandabyggd.is
Ozon youth center is looking for youth workers - please be in touch if you are interested.
Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna og unglinga í gengum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva er börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára.
Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvarinnar. Starfað er í anda lýðræðis á starfsstaðnum og markvisst er unnið að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.
Hæfniskröfur:
Um er að ræða 10-20% hlutastarf síðdegis eða á kvöldin. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Umsóknarfrestur til miðnættis 10. janúar og skal umsóknum skilað á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is ásamt ferilskrá
Nánari upplýsingar gefur Tómstundafulltrúi í síma 895-5509
Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð
Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember.
Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest
Umsóknir sendist á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is