Laus staða frístundaleiðbeinanda
Salbjörg Engilbertsdóttir | 01. nóvember 2023
Laus er staða frístundaleiðbeinanda í frístund eftir skólalok. Um er að ræða 25% stöðu og fer vinna fram mánudaga til fimmtudaga frá 13.30-16.00
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeinir börnum í faglegu frístundastarfi sem mætir þeirra þörfum hverju sinni.
- Vinnur í anda lýðræðis og eykur sjálfstæði, ábyrgð og virkni barna og ungmenna markvisst í starfinu.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er æskileg.
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki.
- Áhugi á starfi með börnum og unglingum og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Metnaður í starfi og hæfni til að vinna í hóp
- Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Um er að ræða 25% hlutastarf. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Starfsmaður þarf að geta byrjað sem fyrst.
Umsóknarfrestur til miðnættis 8. nóvember og skal umsóknum skilað á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is ásamt ferilskrá.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri eða skólastjóri í s. 4513510 eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is