Laus staða starfsmanns við félagsmiðstöðina Ozon
Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. janúar 2022
Laus er 10% staða starfsmanns í félagsmiðstöðinni Ozon í Strandabyggð. Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi kröfur:
- Brennandi áhugi á félagsstarfi barna og unglinga
- Skipulagshæfni og samskiptahæfni
- Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2022.
Nánari upplýsingar veitir:
Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri s.4513510 og á netfanginu salbjorg@strandabyggd.is
Umsóknum með starfsferilsskrá og afrit prófskírteina þar sem við á ásamt upplýsingum um meðmælendur á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is eða á Strandabyggð Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.