Laus störf
Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. janúar 2021
Strandabyggð auglýsir laus störf í Grunnskólanum á Hólmavík og Leikskólanum Lækjarbrekku
- Stuðningsfulltrúi, 100%. Vinnutími 8:00-16:00. Um er að ræða starf með nemanda/nemendum með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla og Frístund. Í starfinu felst einnig gæsla í frímínútum.
- Deildarstarfsmaður á leikskóla 50% Vinnutími 12:00-16:00. Leitað er eftir fólki með kennaramenntun, uppeldismenntuðu fólki eða fólki sem hefur áhuga á að vinna með börnum.
Áhersla er lögð á jákvæðni, sveigjanleika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áreiðanleiki og frumkvæði eru góðir kostir.
Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að fara á milli leik- og grunnskóla og þurfa að geta hafið störf sem allra fyrst.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2021.
Nánari upplýsingar gefur Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri sími 451 3430, skolastjori@strandabyggd.is
Umsóknir ásamt starfsferilskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á netfangið: skolastjori@strandabyggd.is