Laus störf á leikskólanum Lækjarbrekku
Þrjár stöður eru lausar til umsóknar á Leikskólanum Lækjarbrekku.
Laus staða afleysingarstarfsmanns
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni í afleysingastarf. Starfshlutfallið er 100% og er vinnutíminn 8:00-16:00.
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Mikil áhersla er lögð á málörvun og snemmtæka íhlutun. Við leikskólann eru börn frá 9 mánaða aldri til 6 ára. Leitað er eftir öflugum starfsmanni sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki og frumkvæði góður kostur.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 9. ágúst 2018.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Reynsla af börnum.
- Góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Laus staða starfsmanns í eldhús og ræstingar
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni í 100% starf. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Í starfinu felst vinna í eldhúsi, létt matreiðsla og almenn þrif.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 9. ágúst 2018.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Reynsla af börnum.
- Góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Laus staða starfsmanns við ræstingar
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni við ræstingar. Um er að ræða þrif á gólfflötum skólahúsnæðisins. Vinna fer fram eftir kl. 16:00.
Umsóknarfrestur er til 27. júní
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, leikskólastjóri, sími 451 3411, netfang leikskolastjori@strandabyggd.is
Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á leikskolastjori@strandabyggd.is eða Leikskólinn Lækjarbrekka, Brunngötu 2, 510 Hólmavík