A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 13. júlí 2017


 

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir matráð m.ræstingu í 100% starf. Vinnutíminn er 8:00 – 16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf 1.ágúst.

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.

Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is


Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum og ferilskrá á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Umsóknafrestur er til 21.júlí 2017. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur. 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón