Skemmtilegt og gefandi starf á Lækjarbrekku
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 60% starf. Vinnutíminn er 12:00-16:00 fjóra daga vikunnar og 8:00 – 16:00 á miðvikudögum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.
Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknafrestur er til 21.okt. 2016. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.