Staða forstöðumanns íþróttamiðstöðvar laus til umsóknar
Ráðningu lokið
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar eftir að ráða forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar á Hólmavík. Ráðið er í starfið frá 1. júlí n.k.
Við leitum að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfni, er lipur í mannlegum samskiptum og hefur brennandi áhuga á uppbyggingu íþrótta- og lýðheilsustarfs í Strandabyggð.
Helstu verkefni:
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri íþróttamiðstöðvar
- Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og búnaðar
- Faglegri forystu og starfsmannastjórnun
- Að stuðla að framþróun íþróttamiðstöðvarinnar sem og íþróttastarfs í sveitarfélaginu.
Gerðar eru kröfu um að viðkomandi:
- Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
- Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni
- Búi yfir góðri samskiptafærni og getu til að tjá sig í ræðu og riti
- Hafi til að bera frumkvæði og styrk til ákvarðanatöku
- Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd
Forstöðumaður er hluti af stjórnendateymi Strandabyggðar, en í því eru forstöðumenn og sveitarstjóri. Starfinu fylgja því töluverð samskipti við skrifstofu Strandabyggðar, tómstundafulltrúa og aðrar stofnanir sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunnskóla og áhaldahús. Auk þess íþróttafélög og önnur félagasamtök á svæðinu.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið: strandabyggd@strandabyggd.is
Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Valdimarsson, sveitarstjórnarmaður og formaður Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar, á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 451-3510 eða 866-3569, eða á netfangið eirikur@strandabyggd.is