Starfsfólk óskast á Reykhólum
Soffía Guðrún Guðmundsdóttir | 15. janúar 2024
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps stendur fyrir félagsstarfi tvisvar í viku á Hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum.
Frá og með janúar 2024 vantar starfsmann til að sjá um félagsstarfið sem er tvisvar í viku. Um er að ræða 15% starf. Laun samkvæmt kjarasamningum VerkVest. Umsóknarfrestur er til 19. janúar.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is