Starfsfólk óskast á Reykhólum
Soffía Guðrún Guðmundsdóttir | 15. janúar 2024
Starfsfólk óskast í skammtímavistun og stuðningsþjónustu á Reykhólum
Starfsfólk óskast í vaktavinnu í skammtímavistun hjá 17 ára stúlku á Reykhólum. Mjög skemmtilegt og krefjandi starf í fallegu og rólegu umhverfi. Einnig vantar starfsfólk í stuðningsþjónustu með sömu stúlku.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2024.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is