Sumarstörf námsmanna í Strandabyggð
Við viljum vekja athygli námsmanna á því að nokkur störf eru í boði fyrir námsmenn í sumar.
Vinnumálastofnun og félagsmálaráðuneytið hafa sett af stað átak til að efla sumarvinnu námsmanna. Átakið er unnið í samvinnu við sveitarfélögin í landinu.
Strandabyggð auglýsir mér með eftir starfsmanni til starfa á skrifstofu sveitarfélagsins, í eftirtalin verkefni:
- Skjalavistun, greining og flokkun gagna á skrifstofu
- Önnur tilfallandi störf á sviði upplýsingamála.
Vantar þig sumarstarf? Hafðu samband. Umsóknarfrestur er til og með 5. júní.
Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri í síma 451-3510 eða 899-0020. Umsóknum skal skilað í rafrænu formi á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir miðnætti 5. júní n.k.
Vestfjarðastofa auglýsir tvö til þrjú sumarstörf handa námsmönnum sem hluta af átaksverkefni ríkisstjórnarinnar til fjölgunar sumarstarfa.
Skilyrði og forsendur:
Sumarstörf eru fyrir námsmenn milli anna (þ.e. séu að koma úr námi og séu skráðir í nám að hausti).
Námsmenn þurfa að vera að lágmarki 20 ára á árinu.
Ráðningartími er tveir mánuðir á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst.
Störfin sem auglýst eru snúa annars vegar að kortlagningu og skrásetningu áningarstaða á nýrri ferðamannaleið, Vestfjarðaleiðinni. Jafnframt myndi starfsmaðurinn vinna að undirbúningi umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu. Hins vegar er auglýst eftir sumarstarfsmanni sem myndi kortleggja göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir í tengslum við Vestfjarðaleiðina. Í því starfi felst að safna gps upplýsingum, skrifa leiðarlýsingar og skrá grunnupplýsingar. Jafnframt myndi starfsmaðurinn vinna að undirbúningi umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Viðkomandi getur unnið á eða í tengslum við einhverja af fjórum starfsstöðvum Vestfjarðastofu; Ísafirði, Patreksfirði, Hólmavík eða Þingeyri.
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2020.
https://www.vestfirdir.is/is/vestfjardastofa/frettir/sumarstorf
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu
Vinna við að flokka og merkja skjöl og gögn jafnt á pappír sem og rafræn gögn og eftir atvikum létta undir með öðrum starfsmönnum við embættið við ýmis verkefni og viðvik. Um 50% starfshlutfall er að ræða.
https://form.vinnumalastofnun.is/sumarstorf/jobsview.aspx?pk_job_id=5469
Rannsóknarstofnun Háskólans í þjóðfræði auglýsir eftri 3 sumarstarfsmönnum
- Aðstoð við rannsókn: Ímynd og sjálfsmynd.
- Rannsóknaverkefni: Vestfirska þjóðtrúarfléttan.
- Átthagafræði og gamlar ljósmyndir á Hólmavik.