A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

| 17. nóvember 2017

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur samþykkt Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning sem varðar;

-stuðning til viðbótar við almennar húsnæðisbætur frá Vinnumálastofnun

-stuðning vegna 15-17 ára barna á heimavist eða námsgörðum

-stuðning vegna námsmanna 18-20 ára sem ekki fá inni á heimavist eða námsgörðum.

Nánari upplýsingar veitir María Játvarðardóttir, félagsmálastjóri í síma 842-2511

Hundahreinsun og þjónusta dýralæknis-FRESTUN

Salbjörg Engilbertsdóttir | 17. nóvember 2017

Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir í Búðardal, sinnir hreinsun á hundum miðvijkudaginn 29. Nóvember n.k. í Áhaldahúsinu milli kl. 16 og 18.  Kattareigendur eru einnig minntir á nauðsyn þess að láta hreinsa ketti sína en það er þó ekki innifalið í leyfisgjaldi. Hunda og kattaeigendur í Strandabyggð eru hvattir til að mæta og nýta sér þjónustuna.
ATH! BREYTT DAGSETNING VEGNA VEÐURS OG ÓFÆRÐAR...
Meira

Áfangastaðaáætlun DMP á Vestfjörðum - forgangsröðun verkefna

| 16. nóvember 2017


Mánudaginn 20. nóvember

kl. 11:00 - 14:00

í Hnyðju á Hólmavík

Sveitarstjórnarfundur 1267 í Strandabyggð - fundarboð

| 10. nóvember 2017

Fundur nr. 1266 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 14. nóvembber 2017, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík. Fundardagskrá er svohljóðandi:

...
Meira

Styrkir og styrkumsóknir hjá Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 26. október 2017
Samkvæmt reglum um styrkveitingar hjá Strandabyggð, ber umsóknaraðilum að skila inn styrkumsóknum samkvæmt meðfylgjandi reglum fyrir 1.febrúar eða 1. september. Að þessu sinni verður þó gefin frestur til umsókna til 8.nóvember vegna seinni hluta ársins. Sveitarstjórn mun síðan fara yfir allar umsóknir á fundi 14. nóvember n.k. Ef sótt er um styrk umfram 100.000 þúsund krónur skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið. Hér má finna umsóknareyðublað.

Við viljum einnig benda félagasamtökum á að sækja um styrki á móti fasteignagjöldum innan ársins, en reglur þar um voru samþykktar í desember 2015.  Sjá umsóknareyðublað og  reglur hér.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón