A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Lífshlaupið

| 31. janúar 2017

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. 


Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti landlæknis

...
Meira

Landsþing ungmennahúsa

| 27. janúar 2017
Hluti hópsins
Hluti hópsins


Landsþing ungmennahúsa fór fram á Hólmavík helgina 20.-22. janúar í boði Fjóssins, ungmennahúss Strandabyggðar. Þingið fór vel fram og voru þátttakendur ánægðir með dagskrána og heimsóknina yfirhöfuð. Eftirfarandi er fréttatilkynning frá Samfés um landsþingið: 


 


 


Ungmenni galdra á Hólmavík.


Landsþing ungmennahúsa.

...
Meira

Tilkynning frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

| 24. janúar 2017
Magnús Baldursson sálfræðingur verður á Hólmavík fimmtudaginn 26. janúar 2017. Þeir íbúar sem vilja óska eftir tíma hjá Magnúsi er bent á að hafa samband við Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps með því að senda á hana póst í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is .

Nýtt deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Skeljavíkur við Hólmavík í Strandabyggð.

| 11. janúar 2017
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 13. desember  2016 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í Skeljavík við Hólmavík samkvæmt  1. mgr.  41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010....
Meira

Skrifstofustarf hjá Strandabyggð – laust til umsóknar

| 05. janúar 2017
Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar  starf á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða fullt starf. Umsókn ásamt ferilskrá skal berast skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is  fyrir lok dags mánudaginn 23. janúar 2017.

Í starfinu felast meðal annars eftirfarandi verkefni:

...
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón