Salti landað fyrir Hólmadrang í dag
Salti var landað á hafskipabryggjunni í Hólmavíkurhöfn í dag fyrir rækjuvinnsluna Hólmadrang. Verið er að endurnýja stálþil á bryggjunni en hún hefur verið lokuð frá því í september vegna framvkæmdanna sem eru í fullum gangi. Verktakinn Ísar ehf. undirbjó bryggjuna fyrir löndunina ásamt starfsmönnum hafnarinnar en Hólmadrangur greiðir kostnað vegna þessa. Að sögn Sigurðar Marinó Þorvaldssonar hafnarvarðar gekk löndunin mjög vel og er afar gott að geta orðið við þessari beiðni Hólmadrangs. Endurbætur á bryggjunni eru nauðsynlegar og til mikilla bóta fyrir alla hagsmunaaðila þar sem ástand hennar var orðið slæmt. Áætluð verklok vegna endurbyggingar stálþilsins eru 1. mars 2012 og verður farið í útboð á þekjunni í framhaldi af því.
Menntaþing 12. janúar 2012
Dagskrá Menntaþings á Ströndum 2012...
Meira
G-reglan, Grýla Árneshreppsbúa
Greinarhöfundur: Elísa Ösp Valgeirsdóttir
Fundur í Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundur verður haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd miðvikudaginn 11. janúar kl. 18:15. Vinsamlegast sendið erindi á fundinn til byggingarfulltrúa Gísla Gunnlaugssonar í netfangið gisli@tvest.is eða á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, 510 Hólmavík. Erindi sem áður heyrðu undir byggingarnefnd heyra nú beint undir byggingarfulltrúa sem gefur frekari upplýsingar í síma 892 3952.