A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Þjóðskjalasafn með námskeið á Hólmavík

| 16. ágúst 2011
Mynd tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Mynd tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Þriðjudaginn 13. september 2011 mun Þjóðskjalasafn Íslands (ÞÍ) halda almennt námskeið um skjalavörslu fyrir sveitarfélög á starfssvæði Þjóðskjalasafns Íslands í Strandasýslu. Námskeiðið er ætlað fyrir þá sem koma að móttöku, skráningu og frágangi gagna sem ætluð eru til afhendingar ÞÍ og starfsmenn sem vinna að gerð málalykils hjá sveitarfélögum á Ströndum, þ.e. í Bæjarhreppi, Árneshreppi, Kaldrananeshreppi og Strandabyggð.
...
Meira

Skólastarf hefst að nýju

| 15. ágúst 2011

Nú eru starfsmenn Grunn- og Tónskólans á Hólmavík að hefja störf að nýju eftir sumarleyfi og í óðaönn að undirbúa skólaárið 2011-2012. Skólasetning verður í Hólmavíkurkirkju, föstudaginn 19. ágúst nk. kl. 12:00. Eftir skólasetningu fara nemendur í skólann og hitta kennarana sína og fá stundaskrár, skóladagatal, innkaupalista og fleiri gagnleg gögn. Hefðbundið skólastarf hefst eftir stundaskrá mánudaginn 22. ágúst kl. 8:10.

100% starf á leikskólanum Lækjarbrekku

| 15. ágúst 2011
Listaverk eftir listamenn í leikskólanum Lækjarbrekku. Mynd IV
Listaverk eftir listamenn í leikskólanum Lækjarbrekku. Mynd IV
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í fullt starf. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Við leitum eftir öflugu fólki sem hefur gaman af að starfa með börnum, er jákvætt og býr yfir góðri samskiptahæfni.

 

...
Meira

Ráðningar

| 15. ágúst 2011
Listaverk eftir Strandastelpur og Strandastráka í leikskólanum Lækjarbrekku. Mynd IV.
Listaverk eftir Strandastelpur og Strandastráka í leikskólanum Lækjarbrekku. Mynd IV.
Fulltrúi á skrifstofu Strandabyggðar
Elfa Björk Bragadóttir hefur verið ráðin í 50% starf fulltrúa á skrifstofu Strandabyggðar. Elfa Björk mun hefja störf 24. ágúst n.k.

Leikskólinn Lækjarbrekka
Guðrún Margrét Jökulsdóttir hefur verið ráðin í 100% starf í leikskólanum lækjarbrekku. Guðrún Margrét hefur störf um mánaðarmótin ágúst - september.
...
Meira

Losun rotþróa í Strandabyggð

| 12. ágúst 2011

Losun rotþróa í Strandabyggð hefst mánudaginn 15. ágúst 2011. Það er fyrirtækið Hreinsitækni ehf. sem sér um losunina en fyrirtækið hefur áður unnið fyrir sveitarfélagið.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón