| 20. maí 2020
Boðið verður upp á tvö sumarnámskeið í samstarfi Strandabyggðar, Náttúrubarnaskólans og Henrike Stuehff.
Námskeiðin eru fyrir grunnskólanemendur, 6-12 ára, í boði eru hálfir/heilir dagar.
Vika 1 (8.-12.júní): Fjölbreytt dagskrá - fjara, tilraunir, bréfaskrift til eldri borgara ofl. fyrir hádegi og Náttúrubarnaskóli eftir hádegi.
Vika 2 (15.-19.júní): Útivistarnámskeið - ganga, hjól, ofl. fyrir hádegi og Náttúrubarnaskóli eftir hádegi.
Umsjónaraðili á Hólmavík verður Halldóra Halldórsdóttir og eru námskeiðin frá kl.8.30 - 12.30.
Í Náttúrubarnaskólanum verður lögð áhersla á leiki, útivist, náttúrutúlkun og fjör! Um námskeiðin sér Guðlaug Guðmunda Ingibjörg Bergsveinsdóttir ásamt Dagrúnu Ósk Jónsdóttur.
Námskeiðin fara fram við/í Félagsheimilið á Hólmavík og Náttúrubarnaskólann í Sævangi, en þangað verður boðið uppá skólabíl.
Verð:
Fyrir börn sem eiga foreldri með lögheimili í Strandabyggð:
Fyrri vika (5 dagar): 15.000 kr hálfur dagur og 20.000 kr. allur dagurinn.
Seinni vika (4 dagar): 13.000 kr hálfur dagur og 18.000 kr allur dagurinn.
Fyrir börn sem ekki eiga foreldri með lögheimili í Strandabyggð:
Fyrri vika (5 dagar): 19.000 kr hálfur dagur og 24.000 kr allur dagurinn.
Seinni vika (4 dagar): 17.000 kr hálfur dagur og 22.000 kr allur dagurinn.
Innifalið er kennsla, gögn, ávaxtastund fyrir hádegi, kaffitími eftir hádegi og akstur í Náttúrubarnaskólann. Boðið er upp á 20% systkinaafslátt.
Sundnámskeið 2.-12.júní fyrir 3 – 6 ára nemendur leikskólans.
Henrike Stuehff bíður uppá sundnámskeið fyrir 3 – 6 ára leikskólanemendur, námskeiðið mun vera dagana
2. – 12.júní og byrja kl.9.00 – 9.30 á morgnanna. Verð á sundnámskeið er 7500.- og greiðist hjá Henrike. Nauðsynlegt er að annað foreldrið sé með í lauginni.
Skráning á námskeiðin fer fram hér, https://forms.gle/XC9jyeN1QrPLdmTy6 og stendur til 2.júní 2020