A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Námskeið í mennta- og menningartengdri ferðaþjónustu

| 15. febrúar 2011
Sólveig Dagmar Þórisdóttir
Sólveig Dagmar Þórisdóttir

Sólveig Dagmar Þórisdóttir, menningarmiðlari, grafískur hönnuður og ökuleiðsögumaður, er nýr gestur í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu. Hún býður ferðaþjónustuaðilum á Ströndum og nærsveitum upp á námskeiðið ,,Mennta- og menningartengd ferðaþjónusta á Ströndum og Vestfjörðum" í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu.

Sólveig mun leiða hugmyndavinnu á námskeiðinu með aðaláherslu á vetrartímann. Á meðan dvöl hennar stendur, 8. - 19. febrúar, mun hún einnig veita einstaklingsráðgjöf til ferðaþjónstuaðila og hægt verður að panta hjá henni viðtalstíma í Skelinni í síma 8630360.


Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 17. febrúar, kl. 20 í Grunnskólanum á Hólmavík, Skólabraut 20-22. Námskeiðið er gestum að kostnaðarlausu.

Sveitarfélagið Strandabyggð styrkir Skelina, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu.

Síðasti dagur á morgun til að sækja um byggðakvóta

| 14. febrúar 2011
Hólmavíkurhöfn. Mynd Jón Jónsson.
Hólmavíkurhöfn. Mynd Jón Jónsson.
Á vef Fiskistofu (sjá hér) kemur fram að síðasti dagur til að sækja um byggðakvóta til fiskiskipa í Strandabyggð er á morgun, þriðjudaginn 15. febrúar 2011.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir Strandabyggð samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 999/2010 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011. Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í Strandabyggð sbr. auglýsingu nr. 68/2011 í Stjórnartíðindum.


Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu hennar. Umsóknarfrestur er sem fyrr segir til og með 15. febrúar 2011.



Fundað um framtíð Héraðsnefndar Strandasýslu

| 12. febrúar 2011
Stjórn Héraðsnefndar Strandasýslu kom saman eftir langt hlé þann 27. janúar s.l. og fór yfir stöðu og verkefni Héraðsnefndar. Meðal verkefna sem heyra undir Héraðsnefnd Strandasýslu eru barnaverndarnefnd, almannavarnarnefnd, Byggðasafnið á Reykjum, Héraðsbókasafn Strandasýslu auk styrktarsjóða og sarfshópa.

Stjórn Héraðsnefndar mun ásamt sveitarstjórnum sveitarfélaganna fjögurra á Ströndum og sveitarstjóra Strandabyggðar funda með stjórn og safnstjóra Byggðasafnsins á Reykjum 2. mars n.k. Til umfjöllunar verður staða og framtíðarsýn safnsins. Fundurinn er liður í stefnumótunarvinnu fyrir Héraðsnefnd Strandasýslu en þessar vikurnar er stjórnin að skoða hvort starfsemi Héraðsnefndar verði efld til muna eða hvort verkefnin verða færð til sveitarfélaganna og Héraðsnefnd lögð niður í núverandi mynd.

Í stjórn Héraðsnefndar Strandasýslu eru nú Jenný Jensdóttir framkvæmdastjóri nefndarinnar og oddviti Kaldrananeshrepps, Jón Gísli Jónsson oddviti Strandabyggðar, Jón Jónsson varaoddviti Strandabyggðar, Oddný Þórðardóttir oddviti Árneshrepps og Sigurður Kjartansson oddviti Bæjarhrepps. Næsti fundur Héraðsnefndar verður haldinn 7. mars n.k.

Áskorun til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

| 11. febrúar 2011
Hólmavíkurhöfn. Mynd Jón Jónsson
Hólmavíkurhöfn. Mynd Jón Jónsson
Sveitarfélagið Strandabyggð hefur sent Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, bréf þar sem tekið er undir áskorun hagsmunaaðila í Steingrímsfirði um að bætt verði við ýsukvótann og liðkað fyrir framsali hið fyrsta.

Við Steingrímsfjörð starfa ríflega 20 útgerðir, tvö fyrirtæki í vinnslu á bolfiski og Fiskmarkaður. Um er að ræða útgerðir og fyrirtæki sem hafa á sínum snærum 1 - 10 launþega. Á landsmælikvarða má telja þetta tiltölulega lítil umsvif en sú staðreynd að ekki er hægt að róa vegna skorts á ýsukvóta er samfélögunum við Steingrímsfjörð þungbær.

Í bréfi frá hagsmunaaðilum kemur fram að mikil ýsugengd hafi verið í Húnaflóa undanfarin ár, nokkuð sem ekki þekktist á viðmiðunarárum kvótans.

Opnunartímar hjá félagsmálastjóra

| 09. febrúar 2011
Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps
Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps

Félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps, Hildur Jakobína Gísladóttir, er með opnunartíma fyrir íbúa Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Strandabyggðar og Reykhólahrepps sem hér segir:

Hólmavík: Skrifstofa félagsmálastjóra, 2. hæð Þróunarsetrinu, Höfðagötu 3
Mánudagar: 9:30 - 15:00
Miðvikudagar 9:30 - 15:00
Fimmtudagar 9:30 - 12:00

Reykhólar: Skrifstofa sveitarfélagsins, Maríutröð 5
Þriðjudagar: 10:00 - 15:00

Viðvera félagsmálastjóra í Kaldrananeshreppi og Árneshreppi verður auglýst sérstaklega. Allir íbúar sveitarfélaganna fjögurra geta nýtt sér opnunartíma félagsmálastjóra á Hólmavík og Reykhólum. 

Einnig er hægt að ná í félagsmálastjóra á opnunartíma í síma 451 - 3510 og í síma 842-2511.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón