A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Ert þú með ábendingu um umferðaröryggi á Hólmavík?

| 02. september 2010
Á Kópnesbraut - mynd: Sögusmiðjan
Á Kópnesbraut - mynd: Sögusmiðjan

Nú er framundan vinna hjá Bygginga-, umferðar- og skipulagsnefnd Strandabyggðar við að endurskoða umferðarsamþykkt fyrir Hólmavík. Í henni er kveðið á um ýmis mál sem snúa að umferð og umferðaröryggi, svo sem hvar gangbrautir eiga að vera staðsettar. Einnig er þar rætt um hraðahindranir og hámarkshraða, hvar biðskylda eða stöðvunarskylda sé, hvar megi leggja stórum bílum og fleira í þessum dúr. Vegna þessarar vinnu óskar sveitarstjórn Strandabyggðar eftir ábendingum, tillögum og hugmyndum, frá íbúum um öll þessi mál og skal senda tillögur á holmavik@holmavik.is eða skila þeim á skrifstofu Strandabyggar að Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík í síðasta lagi 15. september næstkomandi.

Gjarnan mega fylgja hugleiðingar og vangaveltur fólks um hálkuvarnir og snjómokstur, því einnig er fyrirhugað að samþykkja vinnureglur um þau mál fyrir veturinn.

Fornleifar á Ströndum á Menningarminjadegi Evrópu

| 02. september 2010
Rannsókn á Strákatanga - mynd: Sögusmiðjan
Rannsókn á Strákatanga - mynd: Sögusmiðjan

Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 5. september næstkomandi. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Í tilefni dagsins mun dr. Ragnar Edvardsson minjavörður Vestfjarða leiða gesti um Strákatanga í Hveravík við Steingrímsfjörð Á Strákatanga var á 17. öld erlend hvalveiðistöð þar sem líklegt er að Baskar og fleiri þjóðir hafi haft aðsetur. Þar hafa einnig fundist fjögur kuml frá landnámsöld. Ragnar verður á staðnum frá kl. 11:00 og fram eftir degi.

 

Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is.

Starf í boði: Leikskólastjóri á Hólmavík

| 31. ágúst 2010

Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir leikskólastjóra. Í skólanum eru um 30 börn í tveimur deildum og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Einkunnarorð skólans eru: Gleði – Virðing – Vinátta.

 

Meginhluverk leikskólastjóra er að:

# Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi 
# Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fjármálum og rekstri skólans
# Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans í samstarfi við sveitarstjórn

 

Menntunar- og færnikröfur:
# Leikskólakennaramenntun áskilin
# Menntun, hæfni og reynsla í stjórnun æskileg
# Færni í mannlegum samskiptum

# Áhugi á börnum og samskiptum við þau

# Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi

 

Hólmavík er í 234 km fjarlægð frá Reykjavík og tilheyrir sveitarfélaginu Strandabyggð sem rúmlega 500 manns búa í. Þar er góð þjónusta, öflugur grunn- og tónlistaskóli, fjölbreytt menningarstarf og góð íþrótta- og útivistaraðstaða í einstaklega fallegu umhverfi. Nánar á  www.strandabyggd.is og www.123.is/laekjarbrekka.

 

Umsóknarfrestur er til 15. september næstkomandi. Umsóknir, ásamt ferilskrá og meðmælendum, berist á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, netfang: holmavik@holmavik.is, sem einnig gefur nánari upplýsingar í s. 451-3510.

 

Staðan er laus frá og með 1. október 2010.

 

Hólmavík,  31. ágúst 2010
Sveitarstjóri Strandabyggðar

Starf í boði: 75% staða stuðningsfulltrúa - frestur til 30. ágúst

| 26. ágúst 2010

Vegna óviðráðanlegra orsaka er 75% staða stuðningsfulltrúa við Grunnskólann á Hólmavík, til að sinna nemendum með sérþarfir, hér með auglýst aftur laus til umsóknar.

 

Skólinn er samrekinn grunn- og tónlistarskóli sem leggur sérstaka áherslu á tónlist og tjáningu í skólastarfi. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám og samvinnu. Einnig er áhersla lögð á umhverfismál og flaggar skólinn Grænfánanum frá því í vor.

 

Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Laun eru samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegna starfs stuðningsfulltrúa. Ráðning til starfsins miðast við að umsækjendur hefji störf eigi síðar en 1. september 2010.

 

Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 30. ágúst nk. Umsækjendum er bent á að vanda umsóknir. Þar þurfa að koma fram allar grunnupplýsingar um umsækjanda, starfsferill, menntun og meðmælendur.

 

Umsóknum skal skilað til:

Skrifstofu Strandabyggðar, netfang holmavik@holmavik.is

Hafnarbraut 19

510 Hólmavík


Frekari upplýsingar um starfið veita:

Bjarni Ómar Haraldsson skólastjóri, sími 892-4666 og 451-3129

Hildur Guðjónsdóttir aðstoðarskólastjóri, sími 451-3129 og 661-2010.

Netfang skólans er: skolastjorar@holmavik.is

 

Fjallskilaseðill tilbúinn

| 26. ágúst 2010

Fjallskilaseðill fyrir árið 2010 er tilbúinn og verður sendur út í dag. Jafnframt verður seðillinn settur hér inn á vefinn og er að finna undir þessum tengli. Strandabyggð hvetur íbúa að hefja æfingar og stunda útivist og gönguferðir til að vera í formi þegar göngur og leitir hefjast.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón