A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Íbúafundur í kvöld.

| 25. maí 2009

Haldinn verður íbúafundur í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld, mánudaginn 25. maí kl. 20:00, og eru það framkvæmdastjóri Hamingjudaga og menningarmálanefnd sem boða til fundarins.  Markmiðið með fundinum er að kynna þá atburði sem þegar eru komin á dagskrá Hamingjudaga og kalla eftir hugmyndum hjá íbúum um efni og skemmtiatriði.  Er vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta og komi sínum skoðunum og hugmyndum á framfæri.

Námskeið í markaðssetningu.

| 22. maí 2009
Haldið verður á Ísafirði, Hólmavík, Patreksfirði og Reykhólum námskeið í markaðssetningu undir leiðsögn Jóns Páls Hreinssonar og hefst það 26. maí n.k. og steindur frá kl. 17:00 -21:00 en umsóknarfrestur er til 25. maí.  Er hér um að ræða hagnýtt námskeið fyrir fólk í ferðaþjónustu og aðra þá sem þurfa að koma sér á framfæri.  Verður lögð áhersla á heimasíður, bæklinga og "facebook".  Farið verður í grunnatriði í markaðssetningu og hvernig hægt sé að nýta þessa miðla sem best.  Tekin verða dæmi um hveð er vel gert sem og hvað er síður að virka og þátttakendur aðstoðaðir við að greina sínar áherslur í markaðsmálum.  Námskeiðið verður kennt í gegnum fjarfundabúnað til Hólmavíkur, Patreksfjarðar og Reykhóla og kostar 5.000 kr.  Hægt er að skrá sig hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í síma 451-0080 og á eftirfarandi slóð http://www.frmst.is/index.php/namskeid/texti/markasetning_ertu_a_gera_rett/ .  

Norrænir samspilsdagar á Hólmavík.

| 30. apríl 2009

Í dag hófust norrænir samspilsdagar hér á Hólmavík á vegum Tónskólans en 11 nemendur frá vinabæjum okkar í Hole í Noregi og Aarslev í Danmörku taka þátt í samspilinu ásamt 19 börnum frá Hólmavík.  Munu börnin æfa saman næstu tvo daga vítt og breitt um bæinn en búið er að leggja Café Riis, Braggann, Félagsheimilið og Grunnskólann undir spilverkið.  Næstkomandi laugardag munu síðan þessir ungu tónlistarmenn bjóða upp á tónleika í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefjast þeir kl. 17:00.   Verður ókeypis aðgangur fyrir alla þá sem áhuga hafa á að njóta afraksturs samspilsins.  Með börnunum í för eru 6 fullorðnir sem dvelja hér á meðan og ekki ætti veðráttan að spilla fyrir hópnum, sumarblíða eins og hún gerist best.  Það er Bjarni Ó. Haraldsson tónlistarkennari sem hefur haft veg og vanda við undirbúning og framkvæmd daganna en fjölmargir aðrir hafa lagt hönd á plóginn til að gera samspilsdagana skemmtilega og lærdómsríka.  Í Tónskólanum á Hólmavík eru nú 57 nemendur á grunnskólaaldri í tónlistarnámi eða nærri 80% allra grunnskólanema í Strandabyggð.   

Gleðilegt sumar

| 23. apríl 2009

Strandabyggð vill óska íbúm sem og öllum landsmönnum gleðilegs sumars og þakkar fyrir veturinn.  Að baki er langur og strangur vetur en vonandi veit hækkandi sól á betri tíma fyrir íslenska þjóð. 

Kjörskrá vegna kosningar til Alþingis 25. apríl n.k. og opnun kjörfundar.

| 17. apríl 2009
 

Kjörskrá vegna kosningar til Alþingis.

Kjörskrá vegna kosningar til Alþingis sem fram fer laugardaginn 25. apríl 2009 liggur frammi á skrifstofu Strandabyggðar.  Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að koma þeim á skrifstofu Strandabyggðar.  Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á.

 

Atkvæðagreiðsla á kjörstað.

Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður nú í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík.   Kjörfundur hefst kl. 10:00 en kjörstaður mun opna kl.  11:00 og verður lokað kl. 18:00 (sbr. þó 93. gr. laga um kosningar til alþingis nr. 80/1987).

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón