A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Aðalskipulag Strandabyggðar

| 12. janúar 2010
 

Síðastliðin rúm tvö ár hefur verið unnið að gerð aðalskipulags fyrir Strandabyggð og sér nú loks fyrir endann á þeirri vinnu.  Var gengið til samninga við Landmótun sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi og framkvæmd skipulagsins.  Búið er að setja inn ýmsar skýrslur ásamt drögum að forsendum sem og skipulagstillögu á heimasíðu Strandabyggðar undir liðnum Aðalskipulag og eru íbúar hvattir til að kynna sér þær.

 

Til að hægt verði að ljúka allri skýrslugerð þurfa íbúar Strandabyggðar að senda inn ábendingar eða breytingartillögur til sveitarstjórnar fyrir hádegi mánudaginn 25. janúar n.k. svo koma megi þeim áfram til starfsfólks Landmótunar.  Mun sveitarstjórn ásamt undirnefndum eiga svo vinnufund með Landmótun 28. janúar n.k. þar sem farið verður yfir allar breytingartillögur og ábendingar.

 

Skráning í verkefnið "Vistvernd í verki".

| 08. janúar 2010
Frá kynningarfundi um verkefnið
Frá kynningarfundi um verkefnið "Vistvernd í verki" sem haldinn var 7. janúar.
Umhverfisverkefni fyrir heimili, "Vistvernd í verki" hefst fimmtudaginn 14. janúar.  Þeir sem áhuga hafa á að skrá sig í verkefnið eða fá nánari upplýsingar um það hafi samband við Ástu í síma 451-3389 eða á netfangið astathoris@internet.is ekki síðar en 13. janúar.

Kynningarfundur á "Vistvernd í verki".

| 06. janúar 2010

Fimmtudaginn 7. janúar kl. 19:30 verður haldinn kynningarfundur í Félagsheimilinu um umhverfisverkefnið "Vistvernd í verki" sem er alþjóðlegt fræðsluverkefni er miðar að því að hvetja samfélög til að tileinka sér vistvænan lífsstíl og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.  Býðst íbúum Strandabyggðar nú að taka þátt í visthóp þar sem Strandabyggð hefur samþykkt að taka þátt í verkefninu.  Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér verkefnið.

Visthópur samanstendur af 5-8 manns sem hittast á 6 fundum þar sem farið er yfir mikilvæga þætti í rekstri heimilanna s.s. meðhöndlun úrgangs, rafmagns-, hita- og vatnsnotkun, samgöngumál og innkaup.  Munu leiðbeinendur halda utan um hópana og útdeila verkefnum sem felast í því að mæla ofangreinda þætti og leita leiða til að  spara.  Bera þátttakendur saman bækur sínar og leita sameiginlegra úrlausna á viðfangsefninu.  Í lok námskeiðar skila þátttakendur niðurstöðum mælinga sem gerir kleift að meta sparnað heimilanna og um leið árangurinn af visthópastarfinu.  Nánari upplýsingar er hægt að finna undir liðnum Tilkynningar hér að neðan.

Opnun móttökustöðvar Sorpsamlags Strandasýslu á Skeiði 3

| 10. desember 2009
Laugardaginn 12. desember verður formleg opnun móttökustöðvar fyrir flokkaðan úrgang á Skeiði 3 á Hólmavík.  Er það Sorpsamlag Strandasýslu sem mun sjá um rekstur stöðvarinnar og er ætlunin að opna einnig stöðvar á Drangsnesi, Borðeyri og Norðurfirði.  Munu íbúar og fyrirtæki geta komið með endurvinnanlegan úrgang á móttökustöðina en opið verður til að byrja með á föstudögum frá kl. 16:00-18:00, fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar milli kl. 15:00-17:00 og annan laugardag í hverjum mánuði  frá kl. 13:00-15:00.  Hægt verður að koma með sléttan pappír, dagblöð, tímarit, bylgjupappa, plastfilmu glæra og litaða, hart plast s.s. skyrdósir, málma, timbur, hjólbarða, rafmagnstæki, gler og spilliefni án gjalds. 

Vatnavinir Vestfjarða.

| 04. desember 2009
Þó svo að Vestfirðir séu lághitasvæði má finna mjög víða náttúrulaugar með heitu vatni.  Nú er hafin vinna við að þróa og markaðssetja þessar laugar og huga að lagfæringum á þeim.  Eru það Vatnavinir Vestfjarða sem hafa haft framgöngu um málið og fengið Viktoríu Rán Ólafsdóttur hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða sem verkefnastjóra.  Er hér um viðamikið verkefni að ræða sem vonandi kemur til með að skila inn fleiri ferðamönnum inn á svæðið.  Þá er einnig í bígerð að leggja grunn að uppbyggingu stærri heilsulinda og er þá einkum horft til Reykjaness og Reykhóla í því sambandi.  Er mikill áhugi á að koma upp þaraböðum á Reykhólum og heilsulind í Reykjanesi þar sem vatnið þar er ríkt af steinefnum.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón