Staða stuðningsfulltrúa laus til umsóknar
Grunnskólinn á Hólmavík auglýsir 70% stöðu stuðningsfulltrúa. Vinnutími stuðningsfulltrúa er alla virka daga frá kl. 8:00-13:00 auk þátttöku í starfsmannafundum og sérverkefnum sem tilheyra skólastarfinu. Stuðningsfulltrúi vinnur í teymi með kennurum bekkja, fulltrúa sérkennslu og iðjuþjálfa.
Starfsvettvangur
stuðningsfulltrúa er inni í bekk og á öðrum starfsstöðum Grunnskólans eða
umhverfi hans. Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum eða
fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því
að auka færni og sjálfstæði nemenda, ásamt því að veita þeim félagslegan og námslegan stuðning í daglegum athöfnum.
Starfið tekur mið af eintaklingsáætlunum
sem hafa það að markmiði að draga smám saman úr þörf nemanda á stuðningi í þeim
tilvikum þar sem það er hægt. Laun eru samkvæmt kjarasamningum á almennum
vinnumarkaði. Starfstími er frá 20. ágúst
2012 – 31. maí 2013. Frekari upplýsingar veitir Hildur Guðjónsdóttir skólastjóri í s. 661-2010, skolastjorar@holmavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2012 og skilist með tölvupósti á netfangið skolastjorar@holmavik.is eða með pósti á Skólabraut 20, 510 Hólmavík.
Andrea K. Jónsdóttir tekur við starfi sveitarstjóra
Ingibjörg Valgeirsdóttir fráfarandi sveitarstjóri verður Andreu innan handar næstu daga auk sumarleyfisdaga og lætur af störfum 23. ágúst n.k.
Strandabyggð býður Andreu innilega velkomna til starfa á Ströndum.
Tímabundin staða aðstoðarskólastjóra
Auglýst er tímabundið starf aðstoðarskólastjóra Grunn- og tónskólans á Hólmavík til eins árs, frá 15. ágúst 2012 - 31. júlí 2013.
Skólinn er samrekinn grunn- og tónlistarskóli sem leggur áherslu á tónlist og tjáningu í skólastarfi. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám og samvinnu.
Sveitarfélagið Strandabyggð er að hefja úttekt á kostum og göllum sameiningar grunn-, leik- og tónskóla í sveitarfélaginu.
Starfssvið
Ber ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans í forföllum skólastjóra
Hefur í samráði við skólastjóra umsjón með starfsmannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun, starfsþróun og fl.
Stuðlar að framþróun í skólastarfinu og öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins
Starfar samkvæmt lögum og reglugerðum grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans
Önnur þau verkefni sem skólastjóri felur aðstoðarskólastjóra og eru innan starfssviðs hans ásamt því að sinna kennsluskyldu sinni sem eru 16 kennslustundir á viku
Menntun og hæfni
Grunnskólakennaramenntun og önnur reynsla skv. lögum nr. 87/2008, 12. gr.
Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð à Góð hæfni í samskiptum og sterk löngun til að ná árangri í starfi
Stjórnunar- og leiðtogahæfni
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skilyrði er að skólastjóri verði búsettur innan sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Guðjónsdóttir skólastjóri Grunn- og tónskólans á Hólmavík, hildur@holmavik.is s. 661-2010. Umsóknir ásamt ferilskrá og upplýsingar um umsagnaraðila skal senda í Grunn- og tónskólann á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík. Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2012.
Viðtalstími byggingarfulltrúa og fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar
Fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar verður haldinn sama dag kl. 16:00 á skrifstofu sveitarstjóra. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 9. ágúst 2012 á skrifstofu Strandabyggðar.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi í síma 892 3952 eða í tölvupósti. Netfang byggingarfulltrúa er gisli@tvest.is