6 mánaða skýrsla sveitarstjóra
Virk skoðanaskipti þar sem dregnar eru fram ólíkar hliðar á málum áður en ákvarðanir eru teknar er farsæl leið til framfara. Slík skoðanaskipti viljum við eiga sem oftast við íbúa Strandabyggðar, hvort sem er á skipulögðum fundum, í óformlegu spjalli eða með því að taka við erindum til nefnda og sveitarstjórnar. Við hvetjum ykkur eindregið til að láta í ykkur heyra varðandi þá þætti sem þið eruð ánægð með í sveitarfélaginu og benda okkur á það sem betur má gera.
Til upplýsingar fyrir íbúa verður hér farið lauslega yfir helstu verkefni sem sveitarstjórnarfólk og starfsfólk Strandabyggðar hefur unnið að undanfarna mánuði.
Hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
F.h. sveitarfélagsins Strandabyggðar,
Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri.