A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörsókn í Strandabyggð

| 30. nóvember 2010

Enn er beðið eftir niðurstöðum úr kosningum til Stjórnlagaþings sem fram fóru s.l. laugardag, 27. nóvember 2010. Kjörsókn var víðast hvar dræm. Í Strandabyggð var kjörsókn 33,5%. Enginn frambjóðandi var í framboði til Stjórnlagaþings úr Strandabyggð.

Tómstundafulltrúi í Strandabyggð

| 26. nóvember 2010

Sveitarfélagið Strandabyggð óskar eftir umsóknum um nýtt starf tómstundafulltrúa í sveitarfélaginu.  Um er að ræða 75-100% starf eftir samkomulagi.

 

Tómstundafulltrúi mun sinna fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum sem tengjast menningarmálum, tómstunda- og íþróttastarfi í sveitarfélaginu og hafa yfirumsjón með þeim málaflokkum.

 

Mikilvægur hluti af verksviði tómstundafulltrúa er að veita Félagsmiðstöðinni OZON á Hólmavík forstöðu, vinna að stefnumörkun fyrir starfsemina og bera ábyrgð á fjármunum félagsmiðstöðvarinnar.

 

Hugmynda-, undirbúnings- og skipulagsvinna verður viðamikill þáttur í starfi tómstundafulltrúa. Hann á að vinna að því að efla félagslíf og tómstundastarf ólíkra aldurshópa í sveitarfélaginu og annast samskipti við félagasamtök og stofnanir. Tómstundafulltrúi mun einnig sinna viðburðastjórnun við atburði og uppákomur á vegum sveitarfélagsins eftir því sem við á og taka þátt í stýrihóp sveitarfélagsins um forvarnir. Þá er tómstundafulltrúa ætlað að vinna að fjármögnun verkefna og undirbúa skapandi starf vinnuskóla og sjálfboðaliðasamtaka í sveitarfélaginu.

 

Hæfnis- og menntunarkröfur:

 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulagshæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Frumkvæði og hugmyndaauðgi

 

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til:

 

Skrifstofu Strandabyggðar, s. 451-3510

Hafnarbraut 19

510 Hólmavík
Netfang: holmavik@holmavik.is

 

Umsóknarfrestur er til 10. desember 2010.

Hvernig aukum við áhuga, ábyrgð og áhrif foreldra á skóla-, uppeldis- og fjölskyldumálum?

| 26. nóvember 2010
Helga Margrét Guðmundsdóttir
Helga Margrét Guðmundsdóttir

Það er okkur sem störfum hjá Heimili og skóla mikilvægt að vita til þess að stjórnendur og foreldrar við Grunnskólann á Hólmavík eru að vinna hörðum höndum að því að efla samstarf heimilis og skóla. Heimili og skóli, landssamtök foreldra, vinna sífellt að vitundarvakningu meðal foreldra um hvernig foreldrar geta haft áhrif á skólasamfélagið. Í þeim tilgangi hafa samtökin gefið út sérstakar handbækur fyrir foreldrafélög og hafa haldið úti fræðslu og námskeiðum um aðkomu foreldra að stjórnun skóla.  Einnig gefa samtökin út vefritið Samstíga sem sent er til allra foreldrafélaga og skóla í landinu.

...
Meira

Kjörfundur vegna kosninga til stjórnlagaþings

| 25. nóvember 2010

Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður nú í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 10:00 laugardaginn 27. nóvember 2010 en kjörstaður verður opinn frá kl. 11:00 -18:00 (sbr. 93. gr. laga um kosningar til alþingis nr. 80/1987). Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000:


,,Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil".


Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar,
Guðmundur Björgvin Magnússon

Hundahreinsun á Hólmavík

| 22. nóvember 2010

Þriðjudaginn 30. nóvember 2010 verða dýralæknarnir Hjalti Viðarson og Flora-Josephine með viðveru í Áhaldahúsinu á Hólmavík milli klukkan 16:30-18:00. Þau bjóða upp á ormahreinsun fyrir hunda auk þess sem hægt er að láta bólusetja bæði hunda og ketti.

Verð fyrir bólusetningu hunda er kr. 5000 og  kr. 3500 fyrir ketti. Ekki verður posi á staðnum og er því dýraeigendur hvattir til að vera með peninga á sér.

Ef dýraeigendur hafa hug á að biðja dýralækna um önnur verk í leiðinni er þeim bent á að hafa samband við dýralæknana með fyrirvara í síma 434-1122 eða 866-6528.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón