A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Íþróttamaður ársins

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. janúar 2016
Rósmundur Númason íþróttamaður ársins 2015 og Vala Friðriksdóttir handhafi hvatningarviðurkenningar 2015. Ljósm.Jón Jónsson
Rósmundur Númason íþróttamaður ársins 2015 og Vala Friðriksdóttir handhafi hvatningarviðurkenningar 2015. Ljósm.Jón Jónsson
« 1 af 2 »
Íþróttamaður ársins 2015 í Strandabyggð var valinn í gær en Íþróttamaður ársins  skal valinn í janúar ár hvert.  Hann/hún þarf ekki að vera bundinn íþrótta- eða ungmennafélagi og er valið í höndum Tómstunda -íþrótta og menningarnefndar að undangengnum tilnefningum frá almenningi.  Á sama hátt og nefndin velur íþróttamann ársins er heimilt að velja einstakling eldri en 12 ára sem hlýtur hvatningarverðlaun en þau eru veitt íþróttamanni sem sýnir ríkan áhuga á sinni íþróttagrein, er góður félagi og góð fyrirmynd. Hvor um sig slítur viðurkenningarskjal og blómvönd en auk þess veitir Íþróttafélag lögreglumanna á Hólmavík Íþróttamanni ársins farandbikar....
Meira

Fundarboð - Sveitarstjórnarfundur 1244 í Strandabyggð

| 15. janúar 2016

Fundur nr. 1244 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 19. janúar 2016, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík. Fundardagskrá er svohljóðandi:

...
Meira

Stefnumótun í Strandabyggð 2016

| 13. janúar 2016
Á vordögum síðasta árs hóf sveitarstjórn Strandabyggðar stefnumótunarvinnu á vinnufundi sem Þorgeiri Pálsson hjá Thorp ehf. hafði veg og vanda af. Í framhaldi af þeim fundi var það samróma álit sveitarstjórnar að mikilvægt væri að fylgja þessari vinnu eftir með aðgerðum. Samþykkt var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 að leggja fjármuni í frekari stefnumótun og var gerður samningur við Thorp ehf. um að leiða sveitarstjórn áfram í þeirri vinnu....
Meira

Tilkynning frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólarepps

| 11. janúar 2016
Magnús Baldursson sálfræðingur verður á Hólmavík mánudaginn 1. febrúar og þriðjudaginn 2. febrúar 2016. Þeir íbúar sem vilja óska eftir tíma hjá Magnúsi er bent á að hafa samband við Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps með því að senda á hana póst í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is .

Styrkir og styrkumsóknir hjá Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 05. janúar 2016
Í lok síðasta árs voru samþykktar reglur um styrkveitingar hjá Strandabyggð, en nú ber umsóknaraðilum að skila inn styrkumsóknum samkvæmt meðfylgjandi reglum fyrir 1.febrúar eða 1. september. Sveitarstjórn mun síðan fara yfir allar umsóknir. Ef sótt er um styrk umfram 100.000 þúsund krónur skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið. Hér má finna umsóknareyðublað.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón