A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Tilkynning frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

| 01. apríl 2014
Magnús Baldursson sálfræðingur verður á Hólmavík 29. apríl næstkomandi. Þeir íbúar sem vilja óska eftir tíma hjá Magnúsi er bent á að hafa samband við Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps á skrifstofutíma í síma 451-3521 eða að senda á hana póst í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is ....
Meira

Laus staða yfirleiðbeinanda Vinnuskóla Strandabyggðar

| 25. mars 2014
Vinnuskóli Strandabyggðar auglýsir eftir yfirleiðbeinanda sumarið 2014. Eitt fimm vikna tímabil verður í boði í Vinnuskóla Strandabyggðar í sumar og hefur yfirleiðbeinandi umsjón með því.

Hægt verður að kanna þann möguleika að samræma starf yfirleiðbeinanda og önnur störf í sveitarfélaginu eftir þörfum.

Vinnuskóli Strandabyggðar heyrir tómstundafulltrúa og er í nánu samstarfi við verstjóra Áhaldahúss....
Meira

Forsetahjónin heimsækja Strandabyggð

| 21. mars 2014
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Hólmavík dagana 23. og 24. mars. Á sunnudag kynna forsetahjónin sér starfsemi Hundabjörgunarsveitar Íslands sem verður við æfingar á svæðinu en Dorrit er verndari sveitarinnar. Á mánudag heimsækja forsetahjónin m.a. Grunn- og tónskóla Hólmavíkur, leikskólann Lækjarbrekku og Þróunarsetrið á Hólmavík fyrir hádegi og Heilbrigðisstofnun Vesturlands um hádegisbil þar sem þau snæða hádegisverð með heimilismönnum og starfsfólki. Þá munu forsetahjónin jafnframt heimsækja fleiri stofnanir, söfn og fyrirtæki í sveitarfélaginu áður en þau halda suður á ný. ...
Meira

Fundur umvhverfis- og skipulagsnefndar

| 14. mars 2014

Næsti fundur umhverfis- og skipulagsnefndar verður fimmtudaginn 20. mars n.k. Erindi sem taka þarf fyrir á fundinum þurfa að berast  skrifstofu Strandabyggðar fyrir hádegi þriðjudaginn 18. mars.

...
Meira

Hjóna – og paranámskeið

| 13. mars 2014
Mæðgurnar Hrefna Hugosdóttir hjúkrunarfræðingur og fjölskyldumeðferðarfræðingur og María Játvarðardóttir félagsráðgjafi MA halda hjóna og paranámskeið í matsal Reykhólaskóla mánudagskvöldin 17. og 24. mars kl. 20:30 – 22.00  Markmið með námskeiðinu er að styrkja og efla hjónabönd og parsambönd....
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón