A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Viðtalstími byggingarfulltrúa í dag

| 13. ágúst 2012
Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi er með viðtalstíma í dag, 13. ágúst 2012 milli kl. 10:00 - 12:00 í viðtalsherbergi í Hnyðju, Höfðagötu 3, Hólmavík.


Fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar verður haldinn síðar í dag eða kl. 16:00 á skrifstofu sveitarstjóra.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi í síma 892 3952.

Sveitarstjórnarfundur þriðjudaginn 14. ágúst 2012

| 10. ágúst 2012
Hamingjudagar á Hólmavík 2012. Mynd IV
Hamingjudagar á Hólmavík 2012. Mynd IV
Sveitarstjórnarfundur 1199 í Strandabyggð verður haldinn þriðjudaginn 14. ágúst 2012. Fundurinn verður haldinn í Hnyðju, Höfðagötu 3 og hefst kl. 16:00. Dagskrá fundarins má sjá hér.

Staða stuðningsfulltrúa laus til umsóknar

| 08. ágúst 2012

Grunnskólinn á Hólmavík auglýsir 70% stöðu stuðningsfulltrúa. Vinnutími stuðningsfulltrúa er alla virka daga frá kl. 8:00-13:00 auk þátttöku í starfsmannafundum og sérverkefnum sem tilheyra skólastarfinu. Stuðningsfulltrúi vinnur í teymi með kennurum bekkja, fulltrúa sérkennslu og iðjuþjálfa.

 

Starfsvettvangur stuðningsfulltrúa er inni í bekk og á öðrum starfsstöðum Grunnskólans eða umhverfi hans. Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, ásamt því að veita þeim félagslegan  og námslegan stuðning í daglegum athöfnum. Starfið tekur mið af  eintaklingsáætlunum sem hafa það að markmiði að draga smám saman úr þörf nemanda á stuðningi í þeim tilvikum þar sem það er hægt. Laun eru samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Starfstími er frá 20. ágúst 2012 – 31. maí 2013. Frekari upplýsingar veitir Hildur Guðjónsdóttir skólastjóri í s. 661-2010, skolastjorar@holmavik.is

 

Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2012 og skilist með tölvupósti á netfangið skolastjorar@holmavik.is eða með pósti á Skólabraut 20, 510 Hólmavík.

Andrea K. Jónsdóttir tekur við starfi sveitarstjóra

| 07. ágúst 2012
Andrea K. Jónsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir. Mynd Jón Jónsson.
Andrea K. Jónsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir. Mynd Jón Jónsson.
Andrea K. Jónsdóttir nýr sveitarstjóri í Strandabyggð kemur til starfa í dag. Andrea er útskrifuð úr meistaranámi í verkefnastjórnun með MPM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún lauk BSc prófi í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Bifröst og hafði áður lokið námi í frumgreinum og diplóma í rekstrarfræðum frá sama skóla. Þá er Andrea búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri. 

Ingibjörg Valgeirsdóttir fráfarandi sveitarstjóri verður Andreu innan handar næstu daga auk sumarleyfisdaga og lætur af störfum 23. ágúst n.k. 

Strandabyggð býður Andreu innilega velkomna til starfa á Ströndum.  

Tímabundin staða aðstoðarskólastjóra

| 03. ágúst 2012
Mynd IV
Mynd IV

Auglýst er tímabundið starf aðstoðarskólastjóra Grunn- og tónskólans á Hólmavík til eins árs, frá 15. ágúst 2012 - 31. júlí 2013.

 

Skólinn er samrekinn grunn- og tónlistarskóli sem leggur áherslu á tónlist og tjáningu í skólastarfi. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám og samvinnu.
Sveitarfélagið Strandabyggð er að hefja úttekt á kostum og göllum sameiningar grunn-, leik- og tónskóla í sveitarfélaginu.

 

Starfssvið

Ber ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans í forföllum skólastjóra
Hefur í samráði við skólastjóra umsjón með starfsmannamálum s.s. ráðningum, vinnutilhögun, starfsþróun og fl.
Stuðlar að framþróun í skólastarfinu og öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins
Starfar samkvæmt lögum og reglugerðum grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans
Önnur þau verkefni sem skólastjóri felur aðstoðarskólastjóra og eru innan starfssviðs hans ásamt því að sinna kennsluskyldu sinni sem eru 16 kennslustundir á viku
 

Menntun og hæfni

Grunnskólakennaramenntun og önnur reynsla skv. lögum nr. 87/2008, 12. gr.
Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð à Góð hæfni í samskiptum og sterk löngun til að ná árangri í starfi
Stjórnunar- og leiðtogahæfni
 


Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skilyrði er að skólastjóri verði búsettur innan sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Guðjónsdóttir skólastjóri Grunn- og tónskólans á Hólmavík, hildur@holmavik.is s. 661-2010. Umsóknir ásamt ferilskrá og upplýsingar um umsagnaraðila skal senda í Grunn- og tónskólann á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík. Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2012.

 

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón