A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórnarfundur nr. 1352 í Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 10. nóvember 2023

Fundur nr. 1352 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 14. nóvember kl. 16.00 í Hnyðju Höfðagötu 3, Hólmavík.

Fundardagskrá er svohljóðandi:


1. Fjárhagsáætlun 2024-2027, fyrri umræða – Til afgreiðslu
2. Viðauki IV – frestun framkvæmda og tilfærslur – Til afgreiðslu
3. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga sbr. fjárhagsáætlun 2023 - Til afgreiðslu
4. Velferðarþjónusta Vestfjarða, samningur til seinni umræðu – Til afgreiðslu
5. Velferðarþjónusta Vestfjarða viðauki II, fyrri umræða – Til afgreiðslu
6. Umsókn um milligöngu sveitarfélags vegna skólagöngu nemenda við Tónlistarskólann á Akureyri – Til afgreiðslu
7. Breyting kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn – Til afgreiðslu
8. Erindi frá Innviðaráðuneyti, álitsgerð vegna kvörtunar um ólögmæta stjórnsýslu Strandabyggðar – Til kynningar
9. Erindi frá foreldrafélagi grunn, tón- og leikskóla vegna stöðu á þjónustu – Til kynningar
10. Erindi frá foreldrafélagi grunn, tón- og leikskóla vegna umferðaröryggis – Til kynningar
11. Fundargerðir Ungmennaráðs frá 22. Október og fundargerð frá Ungmennaþingi 4. Nóvember 2023 – Til kynningar
12. Tómstunda, íþrótta-og menningarnefnd fundargerð frá 7. nóvember 2023 – Til kynningar
13. Fræðslunefnd, fundargerð frá 8. nóvember 2023 – Til afgreiðslu
14. Umhverfis- og skipulagsnefnd fundargerð frá 9. nóvember 2023 – Til afgreiðslu
15. Sterkar Strandir, fundargerð frá 28.september 2023 – Til kynningar
16. Forstöðumannaskýrslur október – Til kynningar
17. Vinnuskýrsla sveitarstjóra í október – Til kynningar
18. Aflið styrkbeiðni – Til afgreiðslu
19. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða greinargerð með áætlun 2024 – Til kynningar
20. Fjórðungssamband Vestfjarða staðfest þinggerð 68. Fjórðungsþings ásamt ályktunum þingsins – Til kynningar
21. Samband sveitarfélaga fundargerðir nr. 934 frá 29. september og 935 frá 18. september og 936 frá 27. október–Til kynningar
22. Hafnarsamband Íslands fundargerð nr. 457 frá 19. október 2023 – Til kynningar


Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:


Þorgeir Pálsson
Jón Sigmundsson
Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir
Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir


Strandabyggð 9. Nóvember 2023
Þorgeir Pálsson oddviti

Tillaga að breytingu Aðalskipulags Strandabyggðar 2010-22 - stækkun íbúðarbyggðar á Hólmavík

| 10. nóvember 2023

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 8. ágúst 2023 að auglýsa tillögu að breytingu Aðalskipulags Strandabyggðar 2010-2022 sem felst í stækkun íbúðarsvæða ÍB1 og ÍB2 við Kópnesbraut og Víkurtún á Hólmavík. Íbúðarlóðum á Hólmavík er með breytingunni fjölgað um samanlagt 11 á þessum íbúðarsvæðum

 

Breytingartillagan er aðgengileg í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar sbr. mál nr. 314/2023 á kynningartímanum frá 9. nóvember til 28. desember 2023.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. desember 2023. Mælst er til þess að setja athugasemdir inn í skipulagsgáttina hér. Einnig má senda athugasemdir til skipulagsfulltrúa í netfangið skipulag@dalir.is


Breyting á aðalskipulagi - Tillaga

 

Skipulagsfulltrúi Strandabyggðar

Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggð í Skeljavík

| 10. nóvember 2023

 

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 12. september 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar í Skeljavík skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan felur í sér að afmarka 6 nýjar frístundahúsalóðir og setja skilmála um byggingar og mannvirkjagerð. Deiliskipulagssvæðið tekur til hluta af frístundabyggð Skeljavíkur (F2) skv. Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022.

 

Tillagan er auglýst frá 10. nóvember með athugasemdarfresti til 28. desember 2023. Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar sbr. mál nr. 851/2023 og á heimasíðu Strandsbyggðar www.strandabyggd.is

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. desember 2023. Mælst er til þess að skila athugasemdum inn í skipulagsgáttina hér. Einnig má senda þær til skipulagsfulltrúa í netfangið skipulag@dalir.is 

 

Tillaga að deiliskipulagi Skeljavík 
Tillaga að deiliskipulagi í Skeljavík uppdráttur

 

Skipulagsfulltrúi Strandabyggða

Samtal um aflamark Byggðastofnunar

Þorgeir Pálsson | 06. nóvember 2023

Samtal um aflamark Byggðastofnunar

Sérfræðingar Byggðastofnunar verða á Þróunarsetrinu á Hólmavík mánudaginn 13. nóvember nk. og vilja ná fundum með hagsmunaaðilum vegna mögulegrar úthlutunar á allt að 500 þorskígildistonnum af aflamarki stofnunarinnar til staðarins á yfirstandandi fiskveiðiári 2023/2024. Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlega beðnir um að bóka tíma í gegnum netfangið aflamark@byggdastofnun.is  

Vikan að baki

Þorgeir Pálsson | 06. nóvember 2023

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Yfirfærsla grunnskólans til sveitarfélaganna

Vikan byrjaði á fundi um yfirfærslu grunnskóla yfir til sveitarfélaga, en um 25 ár eru síðan það var gert.  Ég fylgdist með fundinum í streymi framan af og þar kom ýmislegt áhugavert fram.  Við (á Íslandi) erum með eitt dýrasta skólakerfi í OECD.  Hár kostnaður er þó ekki vegna launahækkanna kennara, heldur er stoðkerfið að vaxa, framleiðni í skólastafi dregst saman (OECD könnun) og mikill tími fer í samskipti kennara og foreldra. Einnig var rætt um árangur.  Hvað er árangur?  Og þá má spyrja; Hvað er námsárangur? Hvernig á að mæla hann?  Hugsanlega mætti mæla hann með því að spyrja;  inn í hvaða framhaldsskóla komast nemendur eftir grunnskólanám?  Inn í hvaða háskóla komast nemendur?  Og komast þeir í það nám sem þeir ætluðu sér?  Þetta þurfum við að vita hvað okkar nemendur varðar og mun fræðslunefnd Strandabyggðar skoða þetta í vetur.

 

Það er margt að breytast i skólastarfi á Íslandi þessa dagana.  Innleiðing laga um farsæld barna er t.d. ein breytingin sem var innleidd um áramót og fram kom á fundinum að innleiðingin gæti tekið allt að fimm ár.  Það eru blikur á lofti hvað námsgagnagerð vaðar, sérþjónustu, bið eftir greiningu, fjölgun starfsmanna í stoðþjónustu á kostnað kennara og spurt var hvaða áhrif fjölgun ófaglærðra starfsmanna hefði á nemendur.

 

Sveitarfélögin eiga að móta sína eigin stefnu, með sínum foreldrum og sínu umhverfi.  Þau verða að vera sterkari og verða að horfa á hvernig hægt er að gera skólakerfið betra. Framundan hjá okkur í Strandabyggð er lestur og greining á Menntastefnu Vestfjarða, sem Vestfjarástofa kynnti á Fjórðungsþingi í síðasta mánuði.  Þessa stefnu munum við nota til að endurskoða okkar eigin „Menntastefnu í Strandabyggð“.

 

Skipulagsmál

Áfram er unnið að endurgerð Aðalskipulagsins. Í liðinni viku var m.a. einblínt á aðkomu inn á svæðið við félagsheimilið og íþróttamiðstöðina og tók ég það mál upp á fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar.  Við erum einnig að skoða uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafmagnsbíla á bílastæðinu við Félagsheimilið. 

 

Hrekkjavaka

Hrekkjavaka fór fram í vikunni og tókst mjög vel, í frábæru veðri.  Slökkt var á ljósastaurum frá kl 18 til 21 sem gerði þetta allt meira spennandi.  Það var frábært að sjá hvað margir íbúar lögði mikinn metnað í skreytingar og ekkert vantaði upp á hugmyndaflugið.  Krakkarinr voru alsælir.

 

Fjárhagsáætlanagerð

Sveitarstjórn hélt vinnufund í vikunni og nú var einblínt á forsendur og áherslur hvað rekstarliðina varðar.  Þar var m.a. rætt um gjaldskrárbreytingar, breytingar á útsvari og fasteignaskatti o.s.frv.  Fjárhagsáætlun fer í fyrri umræðu á sveitarstjórnarfundi þann 14.11. n.k.

 

Starfrænt umhverfi sveitarfélaga

Ég sat fjarfund um stafræna umbreytingu sveitarfélaga en þar er mikil þróun í gangi.  Við í Strandabyggð tökum þátt í þessu verkefni sem er á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga.  Á næsta ári verður farið í endurgerð heimasíðu sveitarfélagsins og stofnanna þess og þá þarf að taka tillit til þeirra stafrænu lausna sem í boðu eru.  Við munum sjá breytingu hvað öll samskipti við íbúa varðar, sem m.a. felur í sér gagnvirk samskipti, auðveldara umsóknarferli ofl.

 

Starfsmannamál

Eins og fram hefur komið, höfum við staðið frammi fyrir erfiðleikum við að manna nokkrar stöður hjá sveitarfélaginu.  Það hefur þó heldur snúist til betri vegar og í vikunni var t.d. gengið frá samningi varðandi deildarstjórastöðu í leikskólanum, komin er tímabundin lausn hvað varðar tónlistarkennara og einnig var formlega gengið frá ráðingu matráða við grunnskólann.  Sömuleiðis er kominn matráður í leikskólann.  Þetta er allt mjög gleðilegt en áfram leitum við hins vegar að þroskaþjálfa.

 

Að auki var vikan full af alls kyns samskiptum, vangaveltum og hugmyndavinnu sem miðar að því að gera Strandabyggð betra og öflugra sveitarfélag.

 

Kveðja

Þorgeir Pálsson

Oddviti

 

 

 

 

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón