A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Félagsstarf eldri borgara hefst í næstu viku

| 11. september 2012
Unnið að dýrgripasköpun - ljósm. IV
Unnið að dýrgripasköpun - ljósm. IV
Þriðjudaginn 18. september nk. hefst félagsstarf eldri borgara á vegum Strandabyggðar. Starfsemin er í Félagsheimilinu á Hólmavík og verður þar á öllum þriðjudögum í vetur frá kl. 14:00 til 17:00. Eins og mörg undanfarin ár er Ingibjörg Sigurðardóttir umsjónarmaður félagsstarfsins.

Strandabyggð hvetur sem flesta eldri borgara til að taka þátt í starfinu, enda er það bæði skemmtilegt og gefandi.

Heilsuefling í komandi viku

| 10. september 2012
Heilsuefling í formi smalamennsku - ljósm. af vef Sauðfjársetursins
Heilsuefling í formi smalamennsku - ljósm. af vef Sauðfjársetursins
Heilsuefling í Strandabyggð heldur áfram í nýhafinni viku. Sundleikfimi sem vera átti í dag kl. 17:00 fellur þó niður, þar sem enn er bilun í tölvubúnaði sundlaugarinnar. Von er á viðgerð á búnaðinum nú um miðja þessa viku. Á þriðjudag verður hefðbundin dagskrá með hádegisrölti, fótbolta og badmintoni í Íþróttamiðstöð. Á miðvikudag stjórnar Andrea K. Jónsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar hádegisrölti frá Þróunarsetrinu - þá gefst tilvalið tækifæri fyrir íbúa að mæta og kynnast nýja sveitarstjóranum. Síðar sama dag verður sundkennsla fyrir fullorðna kl 17:00.

Skoðið dagskrá næstu daga með því að smella hér.

Sveitarstjórnarfundur 11. september

| 07. september 2012
Hólmavíkurkirkja - ljósm. ÁJ
Hólmavíkurkirkja - ljósm. ÁJ
Sveitarstjórnarfundur nr. 1200 í Strandabyggð verður haldinn þriðjudaginn 11. september nk. Fundurinn verður haldinn í Hnyðju að Höfðagötu 3 á Hólmavík og hefst kl. 16:00.

Dagskrá fundarins má sjá með því að smella hér.

Fundaáætlun sveitarstjórnar Strandabyggðar

| 07. september 2012
Skrifstofa Strandabyggðar - ljósm. JJ
Skrifstofa Strandabyggðar - ljósm. JJ
Í samræmi við samþykkt um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar hafa verið ákveðnar dagsetningar á sveitarstjórnafundum næsta árið. Sveitarstjórn heldur fundi að jafnaði á mánaðarfresti og hefjast þeir kl. 16:00, annan þriðjudag í mánuði.

Verði tímasetningu fundanna breytt verður það auglýst sérstaklega. Erindi sem óskað er eftir að sveitastjórn fjalli um á fundum sínum þurfa að berast til sveitarstjóra fyrir lok miðvikudags í vikunni fyrir fund. Áætlunina má nálgast með því að smella hér.

Heilsuefling heldur áfram

| 07. september 2012
Hressir krakkar í Leikskólanum Lækjarbrekku - ljósm. IV
Hressir krakkar í Leikskólanum Lækjarbrekku - ljósm. IV
Á morgun, laugardaginn 8. september, er komið að allra yngstu kynslóðinni að taka þátt í heilsueflingu í Strandabyggð. Klukkan 11:00 hefst leikfimi fyrir börn á aldrinum 3-6 ára í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Það er Jóhanna Rósmundsdóttir sem mun sjá um tímana og ætlast er til að foreldi eða umsjónaraðili sem hefur náð 15 ára aldri mæti með barninu og taki þátt. Að þessu sinni verður sett upp þrautabraut. Markmið þess að fara í gegnum brautina er meðal annars að efla alhliða hreyfiþroska barna, til dæmis jafnvægi, liðleika, styrk, gróf- og fínhreyfingar.

Fólk er hvatt til að taka þátt í heilsueflingunni og mæta um helgina - sjá dagskrána með því að smella hér.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón