A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Nýr slökkvibíll Strandabyggðar

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. apríl 2019
Einar slökkviliðsstjóri tekur við lyklunum
Einar slökkviliðsstjóri tekur við lyklunum
« 1 af 3 »

Kæru íbúar

Í dag tökum við á móti nýjum slökkvibíl í Strandabyggð.  Bíllinn var keyptur hjá Krafti og fullsmíðaður hjá Ósland ehf á Ólafsfirði.

Bíllinn verður til sýnis við Þambárvelli kl. 11.30, við Broddanes kl. 12.30 og við Félagsheimilið á Hólmavík kl. 14.00, við hvetjum alla íbúa til að mæta og skoða þennan glæsilega bíl.   

 

Sveitarstjórnarfundur 1288

| 12. apríl 2019

Sveitarstjórnarfundur 1288 í Strandabyggð

Fundur nr. 1288 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 16. apríl 2019 kl 16:00 í Hnyðju.

 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

 

  1. Ársreikningur Strandabyggðar vegna 2018 – fyrri umræða
  2. Beiðni um tilnefningu í  verkefnaráð vegna undirbúnings vegna uppsetningar tengivirkis í Djúpi og tengingu Hvalár
  3. Fréttatilkynning 9. apríl 2019 – viðburðir á aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands, lagt fram til kynningar
  4. Málalykill Strandabyggðar 2019-2024
  5. Veraldarvinir, fyrirspurn um samstarf
  6. THE Ráðgjöf – kynning á húsnæðisvalkostum.

 

 

Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:

Aðalbjörg Sigurvaldadóttir

Guðfinna Lára Hávarðardóttir

Ingibjörg Benediktsdóttir

Jón Gísli Jónsson

Pétur Matthíasson

Páskar 2019 - opnunartími íþróttamiðstöðvar

| 12. apríl 2019
No photo description available.

Hressir krakkar mótmæla

| 12. apríl 2019
Þessir hressu krakkar úr Grunnskólanum komu að Þróunarsetrinu í dag og mótmæltu.  Þau mótmæltu gróðurhúsaáhrifum og því hvernig við horfumst ekki í augu við afleiðingar þess.  Þau mótmæltu því líka að Strandabyggð sá sér ekki fært að taka við flóttafólki að beiðni Útlendingastofnunar.  Við ræddum saman dágóða stund og skýrðum málin, en fengum líka upp margar góðar hugmyndir, sem ég læt hér með fylgja inn í umræðuna:
  • Byggjum húsnæði úr gámum til að taka við flóttafólki
  • Sveitarfélagið kaupir Hostelið fyrir flóttafólkið
  • Setjum upp moltustöðvar á vissa staði í þorpinu
  • Eflum þekkingu á flokkun á rusli
  • Borðum minna og hendum ekki mat
  • Göngum í vinnuna
  • Kaupum minna inn í hvert skipti 
  • Við þurfum ekki að eiga alltaf nýjustu útgáfu af farsíma, sem smábörn víða um heim búa til við óviðunandi aðstæður
  • ofl.
Það er frábært að eiga svona krakka sem láta sér umhugað um umhverfið og náungann.  Þetta er framtíðin okkar og við skulum hlusta á hana! 

Flott krakkar, takk fyrir komuna! Komið sem oftast.

Kveðja frá sveitarstjóra

| 09. apríl 2019

Sæl öll,


 


Það er nokkuð liðið síðan ég sendi frá mér eins konar vinnuskýrslu og þykir mér það miður.  Hér koma því nokkrir punktar yfir nokkur verkefni sem ég hef unnið að síðustu vikurnar.


Hitaveitumál


Nú er að komast skriður á þessi mál.  Búið er að hitamæla holurnar eins og sagt var frá hér fyrir nokkru. Næsta skref er álagsprófun, til að komast að því hvort þarna sé nægjanlegt vatn og af þeim hita sem við þurfum.  Við vinnum nú með ISOR, Verkfræðiskrifstofunni Stoð á Sauðárkróki og Íslenskri Jarðhitatækni ehf, að undirbúningi og vonumst til að álagsprófun hefjist í byrjun maí.


Umhverfisátak


Undirbúningur fyrir umhverfisátak er hafinn, eins og sagt hefur verið frá á heimasíðunni okkar.  Það er að ýmsu að hyggja þegar svona átaki er ýtt af stað, og núna er unnið að því að tryggja að öll geymsluaðstaða innan Strandabyggðar sé til staðar og standist allar kröfur.

...
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón