Íþróttamiðstöðin í Strandabyggð
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Nú reynir á samstöðu og skilning. Eins og þið hafið sjálfsagt mörg hver séð, hafa komið upp vandamál í rekstri sundlaugarinnar. Gufubaðinu hefur verið lokað vegna rakaskemmda í veggjum inn í búningsklefum, einnig eru rakaskemmdir úr sturtuklefum og út í ganginn að búningsklefum, barnalaugin er lokuð þar sem klæðningin í þeirri laug er ónýt og þarf að skipta þar um. Síðan gerist það nýlega að sandsía sprakk og við það datt annar heiti potturinn út. Að auki stöndum við frammi fyrir verulegum endurbótum á lagnakerfi laugarinnar, þar sem skipta þarf um lagnir og annan búnað sem er kominn á tíma. Það vantar nýjan dúk yfir laugina, lagfæra þarf gangstétt umhverfis laugina og svona mætti halda árfam. Við stöndum einfaldlega frammi fyrir þeirri staðreynd að verulegra úrbóta er nú þörf. Við vinnum ásamt byggingarfulltrúa Strandabyggðar að því að ná yfirsýn yfir alla þessa þætti svo hægt sé að skapa heildarmynd af umgangi og kostnaði við viðgerðir og endurbætur.
Það er á sama tíma ljóst, að við verðum að forgangsraða og sú forgangstöðun mun aldrei falla öllum í geð. Það er eðli þess að forgangsraða og það á vel við í þessu, að sá á kvölina sem á völina. En við verðum að forgangsraða og við kölllum hér með eftir skilningi íbúa á því ástandi sem nú er komið upp. Við ætlum að koma heita pottinum í lag fyrst, barnalauginni fyrir vorið, nýr dúkur yfir laugina verður keyptur fyrir veturinn o.s.frv. Gufubaðið er því miður neðarlega á þessum forgangslista og þarf að bíða um sinn.
Þetta er ekki endilega skemmtilegasti pistill sem þið lesið, en það jákvæða er þó þetta; við vinnum nú að því að móta áætlun um að ráðast í endurbætur á íþróttamiðstöðinni. Markmið okkar er að hér sé góð aðstaða og umhverfi til íþróttaiðkunnar, slökunar og almennrar vellíðunar, þannig að okkur og þeim sem heimskækja Strandabyggð geti liðið vel þegar þeir nýta sér þjónustu íþróttamiðstöðvarinnar.
Kveðja
Þorgeir Pálsson.
Sveitarstjóri
Auglýsing um skipulagsmál í Strandabyggð
Auglýsing um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 - 2022
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 11. september 2018 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 – 2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða óverulega breytingu á aðalskipulagi sem felur ekki í sér stórvægilegar breytingar á landnotkun. Breytingin felst í því að hluta verslunarreitar V2 er breytt í athafnasvæði, þar sem fyrirhuguð er þjónusta fyrir bifreiðar og báta.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Uppdráttur er sýnir breytinguna er til sýnis á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3 á Hólmavík og á heimasíðu Strandabyggðar, www.strandabyggd.is.
Hólmavík 14. september 2018.
Gísli Gunnlaugsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Nýjir fulltrúar í Ungmennaráði Strandabyggðar
Í dag hélt sitjandi ungmennaráð sitt seinasta Ungmennaþing þar sem farið var yfir þau verkefni sem ungmennaráð vann seinasta ár og kosnir voru nýjir fulltrúar í ungmennaráð.
Seinasta ár hefur ungmennaráð unnið mörg flott verkefni og sinnt starfi sínu vel. Mætt á Landsþing ungmennahúsa, komið á reglulegum opnunum í Ungmennahúsinu Fjósið, héldu Ungmennaþing þar sem staða Strandabyggðar var rædd út frá flokkunum atvinna, tómstundir og húsnæði, komu af stað ungmennastarfi hjá Björgunarsveitinni Dagrenning í samstarfi við björgunarsveitina, voru með viðburðinn Nerf-byssustríð á Hamingjudögum og héldu skuggakosningar fyrir sveitastjórnarkosningar.
Á þinginu voru kosnir tveir nýjir fulltrúar en fulltrúar ungmennaráðs sitja tvö ár í senn. Alls sitja fimm fulltrúar í ungmennaráði og er því kosið um tvo nýja fulltrúa annað hvort ár og árin á móti eru kosnir þrír nýjir fulltrúar. Í dag viku Birna Karen Bjarkadóttir og Guðrún Júlíana Sigurðardóttir frá störfum og viljum við þakka þeim fyrir framtak sitt. Sjö ungmenni gáfu kost á sér í ungmennaráð og var mjög naumt á munum en tvö ungmenni hlutu aðalmanna sæti í ungmennaráði og hin fimm hlutu sæti varamanna. Nýjir aðalmenn eru Elín Victoría Gray og Benedikt Jónsson og varamenn eru Guðrún Júlíana Sigurðardóttir, Brynhildur Sverrisdóttir, Laufey Heiða Reynisdóttir, Helgi Sigurður Júlíusson og Harpa Óskarsdóttir
Hvet ég alla til að kynna sér erindisbréfið ungmennaráðs hér og fylgjast með starfi þeirra í gengum fundargerðir hér.
Takk fyrir frábært þing kæru ungmenni, þið eruð ómissandi!
Alheimshreinsunardagurinn 15.september
Meira