A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starfsmaður óskast við félagsstarf aldraðra, hlutastarf

Salbjörg Engilbertsdóttir | 02. febrúar 2018

Starfsmaður óskast í félagsstarf aldraðra á Hólmavík frá 1. mars 2018. Um er að ræða leiðbeiningar og umsjón með útskurði í tré. Starfshlutfall er 15% og fer fram síðdegis. Starfsaðstaða er í smíðastofu Grunnskólans yfir vetrarmánuðina. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest.

Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Höfðagötu 3 á Hólmavík sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 842-2511 eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is

Leikhópurinn Lotta heimsækir Hólmavík

Salbjörg Engilbertsdóttir | 02. febrúar 2018
« 1 af 4 »
Næstkomandi fimmtudag 8.febrúar mun Leikhópurinn Lotta gleðja Strandamenn og nærsveitir með sýningunni Galdrakarlinn í Oz.  Sýningin verður í Félagsheimilinu á Hólmavík kl. 17.30 og hægt er að kaupa miða á tix.is eða í gegnum leikhopurinn lotta.is

Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til landsins Oz og hvernig hún kynnist heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu og kemst í kast við vondu Vestannornina sem vill ná af Dórótheu silfurskónum sem henni eru gefnir. Spurning er bara hvort Galdrakarlinn ógurlegi í Oz getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.

Leikstjóri – Ágústa Skúladóttir

Höfundur leikgerðar – Ármann Guðmundsson
Lög og söngtextar – Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Eggert Hilmarsson og Snæbjörn Ragnarsson.
Leikarar – Anna Bergljót Thorarensen, Baldur Ragnarsson, Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson




Opið fyrir styrkumsóknir

Salbjörg Engilbertsdóttir | 02. febrúar 2018
Samkvæmt samþykktum reglum um styrkveitingar hjá Strandabyggð ber umsóknaraðilum að skila inn styrkumsóknum samkvæmt meðfylgjandi reglum fyrir 1.febrúar eða 1. september. Að þessu sinni verður þó gefin frestur til umsókna til 9.febrúar. Allt árið er tekið við styrkumsóknum en þær afgreiddar á fundum sveitarstjórnar í febrúar og september.  Ef sótt er um styrk umfram 100.000 þúsund krónur skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið.   Hér má finna umsóknareyðublaðið um minni styrki.

Starfsmaður óskast í félagsstarf aldraðra á Hólmavík

| 01. febrúar 2018
Starfsmaður óskast í félagsstarf aldraðra á Hólmavík frá 1. mars 2018. Um er að ræða leiðbeiningar og umsjón með útskurði í tré. Starfshlutfall er 15% og fer fram síðdegis. Starfsaðstaða er í smíðastofu Grunnskólans yfir vetrarmánuðina. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest....
Meira

Auglýsing um tillögu að Svæðisskipulagi Dala, Reykhóla og Stranda 2018-2030

| 25. janúar 2018
« 1 af 3 »
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar samþykkti þann 18. janúar 2018 að auglýsa tillögu að svæðisskipulagi sveitarfélaganna þriggja, skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tilheyrandi umhverfisskýrslu, skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.  ...
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón