A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Styrkir og styrkumsóknir hjá Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 24. febrúar 2017
Í lok ársins 2015 voru samþykktar reglur um styrkveitingar hjá Strandabyggð, en nú ber umsóknaraðilum að skila inn styrkumsóknum samkvæmt meðfylgjandi reglum fyrir 1.febrúar eða 1. september. Að þessu sinni verður þó gefin frestur til umsókna til 8.mars. Sveitarstjórn mun síðan fara yfir allar umsóknir. Ef sótt er um styrk umfram 100.000 þúsund krónur skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið. Hér má finna umsóknareyðublað.

Vegna ljósleiðaratenginga í Strandabyggð 2017

| 24. febrúar 2017
Ljósmyn: Jón Jónsson
Ljósmyn: Jón Jónsson
Fyrr á árinu auglýsti fjarskiptasjóður eftir umsóknum frá sveitarfélögum vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2017. Sveitarfélagið Strandabyggð sótti um styrk eins og flest sveitarfélög á Vestfjörðum en þrjátíu milljónir voru til úthlutunar á því svæði.

Sendar voru inn sjö mismunandi umsóknir vegna þriggja svæða í sveitarfélaginu Strandabyggð. Í fyrsta lagi...
Meira

Fulltrúar Viðlagatryggingar Íslands í heimsókn

| 24. febrúar 2017
Í gær heimsóttu fulltrúar Viðlagatryggingar Íslands (VTÍ ) til fundar við fulltrúa Strandabyggðar og Kaldrananeshrepps á skrifstofu Strandabyggðar á Hólmavík. Heimsóknin var liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki hennar og skráningu opinberra mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ....
Meira

Ungmennaþing

| 20. febrúar 2017
Annað ungmennaþing Strandabyggðar fer fram í félagsheimilinu á Hómavík þann 22. febrúar kl 12:15. Ungmennaráð skipuleggur þingið með aðstoð tómstundafulltrúa og býður upp á heimabakaðar pizzur að þessu tilefni. Þingið sækja vonandi allir íbúar sveitarfélagsins á aldrinum 14-25 ára í góðu samstarfi við skóla, stofnanir og fyrirtæki....
Meira

Á annað hundrað gegn ofbeldi

| 20. febrúar 2017
Á annað hundrað manns dönsuðu gegn ofbeldi í Hnyðju síðastliðinn föstudag. Grunnskólinn og eldri deild leikskólans létu sig ekki vanta á viðburðinn. Þess utan lögðu gestir og gangandi góðu málefni lið með því að dilla sér við tónlista félagsmiðstöðvarinnar Ozon....
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón