Vegna gjaldskrárhækkanna
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Frá áramótum hafa vissar gjaldskrárhækkanir tekið gildi. Það gerist samhliða fjárhagsáætlanagerð, að sveitarstjórn þarf að rýna í gjaldskrár og hækka þær, bæði til að viðhalda tekjum sveitarfélagsins en eins til að halda í við kostnaðarhækkanir við veitt þjónustustig. Hér í Strandabyggð erum við vön tiltölulega háu þjónustustigi, hvort sem það ert.d. snjómokstur eða þjónusta leikskóla.
Við þessa fjárhagsáætlanagerð tók sveitarstjórn þá ákvörðun, að hækka gjaldskrá almennt um 10% heilt yfir. Við þá ákvörðun var fyrst og fremst horft til þess að sveitarfélagið er á viðkvæmum stað i sinni fjárhagslegu endurskipulagningu og því þurfa allar rekstrareiningar að skila tekjum til þeirrar endurskipulagningar.
Fram hefur komið umræða um hækkun leikskólagjalds, sem nú er 42.480 með mat. í 8 tíma vistun. Hækkunin frá fyrra ári er kr. 3.865.- , eða úr kr. 38.615.- í kr. 42.480.- Í ljósi þeirrar góðu og miklu starfsemi sem innt er af hendi á leikskólanum, er þetta ekki mikil hækkun. Gjald í tónlistarskólann var einnig hækkað og gilda þar sömu rök og í öðru.
Á móti er rétt að hafa í huga, að leikskólagjöldum er ætlað að styðja við rekstur leikskólans og viðhalda því góða starfi sem þar fer fram. Leikskólastigið er gífurlega mikilvægt, því þar er grunnurinn lagður. Krakkarnir okkar koma vel undirbúin upp í grunnskóla og þannig viljum við hafa það. Leikskólagjöld almennt á landinu eru of lág og hafa alls ekki fylgt launaþróun í landinu. Ef við færum þá leið að takmarka hækkun leikskólagjalds, værum við einfaldlega að takmarka möguleika okkar til að bjóða jafn öflugt starf í leikskólanum og raun ber vitni.
Þá hafa einhverjar ábendingar komið fram varðandi innheimtu mötuneytiskostnaðar og hafa einhverjir foreldrar kallað eftir frádrætti þegar barn kemst ekki í skólann, fer í frí eða þess háttar. Nú er það svo, að fyrirsjáanleiki í fjölda máltíða er lykilatriði fyrir þjónustuaðila sem sér skólunum fyrir mat. Að auki er skrifstofa Strandabyggðar einfaldlega of fámenn til að hægt sé að standa í slíkum útreikningum mánaðarlega. Foreldrar greiða fæðiskostnað á mánaðargrundvelli og út frá þeim fjölda sem skráður er í mat, er hægt að áætla innkaup. Það er viðbúið að sérsniðinn taxti eftir fjölda matardaga hvers barns, myndi hækka matarkostnað verulega, enda aukið umfang og vinna sem þessu myndi tengjast.
Það er von okkar að fólk sýni þessu fyrirkomulagi skilning og sé samstíga okkur í því að efla þjónustustigið en á sama tíma að sjá til þess að kostnaður við það sé viðráðanlegur.
Að lokum hvet ég foreldra til að hafa samband við mig beint thorgeir@trandabyggd.is eða í 899-0020, eða skrifstofu Strandabyggðar ef spurningar vakna, eða þið viljið koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum. Það er mikið álag á starfsfólki grunnskóla í að samhæfa kennslu á þremur stöðum og ég því bið ég ykkur að hlýfa þeim eins og kostur er.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti
Dagur kvenfélagskonunnar 1.febrúar
1. febrúar er dagur kvenfélagskonunnar. Strandabyggð óskar öllum kvenfélagskonum í Strandabyggð, núverandi og fyrrverandi, innilega til hamingju með daginn. Kvenfélagskonur og kvenfélagið hefur verið og er enn, ein sterkasta stoð þessa samfélags. Þau eru ófá tilefnin og viðburðirnir sem kvenfélagið hefur séð um í okkar samfélagi. Þar á sér stað mikil óeigingjörn sjálfboðavinna, sem við skulum ávallt hafa í huga.
Umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir 15-17 ára
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir umsóknum um sérstakan húsnæðistuðning fyrir 15-17 ára börn.
Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra og forsjáraðila 15-17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist, námsgörðum eða á almennum markaði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 60% af leigufjárhæð. Fjárhæð styrks skal þó aldrei nema hærri upphæð en 22.000 kr. á mánuði. Lágmarkgreiðsla foreldra eða forsjáraðila skal vera 10.000 kr. á mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns.
Umsóknum og fylgigögnum skal skila til Soffíu G. Guðmundsdóttur félagsmálastjóra á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is eða á skrifstofu Félagsþjónustunnar að Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Nánari upplýsingar veitir Soffía í síma 451-3510 eða í tölvupósti á ofangreint netfang.
Sjálfsmynd, samfélagsmiðlar og samskipti kynjanna - fyrirlestur í kvöld, 24.01.23
Kæru íbúar Stranda og Reykhóla,
Foreldrafélögin á Hólmavík, Reykhólum og Drangsnesi bjóða upp á fræðslu um samskipti, sjálfsmynd og samfélagsmiðla í næstu viku. Það eru þau Kári Sigurðsson og Andrea Marel fyrirlesarar frá Fokk me-Fokk you sem koma og halda fyrirlestur fyrir foreldra í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld, þriðjudaginn 24. janúar kl 19.30.
Á morgun, miðvikudaginn 25. Janúar verða þau með fræðslu fyrir 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Fræðsla fyrir 5.-7. bekk kl.09:00 og fyrir 8.-10. bekk kl.10:30. Nánar auglýst síðar.
Fræðslan fjallar um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna. Hún er ætluð unglingum og ungmennum, foreldrum þeirra og aðstandendum og starfsfólki sem starfar með unglingum. Í fræðslunni er rætt um sjálfmyndina, hvað það er sem hefur áhrif á okkur frá degi til dags, áhrif fjölmiðla, virðingu, notkun samfélagsmiðla ofl. Sérstaklega er rætt um kynferðislega áreitni og stafrænt kynferðisofbeldi. Í gegnum fræðsluna eru sýndar myndir og skjáskot sem unglingar hafa sent fyrirlesurunum, ræddar reynslusögur ungs fólk og reynslu þeirra Kára og Andreu úr starfi með unglingum.
Foreldrafélagið hvetur foreldra til fjölmenna á þennan fyrirlestur, sem snertir svo mjög okkar daglega líf og þroska og velferð barnanna okkar.
Kveðja
Forledrafélag Grunnskólans á Hólmavík