A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Hrekkjavaka, Draugahús

Þorgeir Pálsson | 26. október 2022
Það er komin Hrekkjavaka! 

Það hefur varla farið framhjá neinum, að það er komin Hrekkjavaka með tilheyrandi.  Á föstudag 28. október  kl 17-19 verður Draugahús í Félagsheimilinu.  Í Draugahúsinu má búast við alls kyns óvæntum látum.

Milli kl 19 og 21 geta síðan börn gengið á milli húsa, bankað uppá og boðist til að syngja fyrir sælgæti eða annað góðgæti.  Það hefur skapast sú venja, að þar sem hús er skreytt, þar má banka uppá.  Og krakkar;  það er vissara að hafa vasaljós, því það er ekki víst að það verði ljós á öllum ljósastaurum!

Gerum daginn skemmtilegan með krökkunum okkar!

kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti

Samfélagssáttmáli um styrkveitingar í Strandabyggð

Þorgeir Pálsson | 24. október 2022
Kæri íbúar Strandabyggðar,

Nú í aðdraganda fjárhagsáætlanagerðar, þarf að skoða vel ákvarðanir um ráðstöfun fjármagns sveitarfélagsins.  Eitt af því sem nauðsynlegt er að skoða, eru styrkveitingar, sem hafa verið viðtekin venja í sveitarfélaginu til langs tíma.  

Sveitarstjórn tók fyrir á fundi sínum í ágúst, sl. hugmyndina að "samfélagssáttmála um styrkveitingar", þar sem reynt væri að skilgreina eðli styrkveitinga og skapa réttar forsendur fyrir ráðstöfun fjármagns í styrki á hverjum tíma.  Í bókun sveitarstjórnar frá þeim fundi segir:  "Samfélagssáttmáli um styrkveitingar. Lögð eru fram drög að Samfélagssáttmála um styrkveitingar í Strandabyggð. Strandabyggð hefur lengi stutt við ýmis konar grasrótarstarf með beinum og óbeinum styrkveitingum og með því eflt mannlíf í Strandabyggð. Styrkveitingar eru hins vegar ekki sjálfgefnar og því mikilvægt að vandað sé til verka, í sátt við íbúa og aðra hlutaðeigandi. Rétt er að hafa í huga að styrkveitingar eru í raun meðvituð ráðstöfun á fjármunum sveitarfélagsins og þar með íbúa."

Eitt af því sem sveitarstjórn lagði áherslu á, var að gefa íbúum færi á að tjá sig um hugmyndina að samfélagssáttmála og markmiðinu með slíkum sáttmála. Nú gefst íbúum það tækifæri og hér má finna drög að sáttmálanum.  Þeir sem vilja koma skoðunum sínum eða ábendingum á framfæri, geta gert það í tölvupósti til sveitarstjóra á netfangið thorgeir@strandabyggd.is eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir lok dags föstudaginn 28. október n.k.

Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

| 24. október 2022

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember.

Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest

Umsóknir sendist á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Fjárhagsáætlanagerð – hvert stefnir?

Þorgeir Pálsson | 20. október 2022

Kæri íbúar Strandabyggðar,

Þessa dagana vinna sveitarfélögin á landinu að fjárhagsáætlanagerð.  Gerð er nokkuð ítarleg áætlun fyrir komandi ár, 2023 og síðan grófari áætlun fyrir næstu þrjú ár þar á eftir.  Þessi vinna byggir á því að rýna í þróun helstu tekju- og kostnaðarliða, meta ástandið í samfélaginu, horfur á vinnumarkaði, launamál, áherslur stjórnvalda, útlit í atvinnulífnu, endurskoða gjaldskrár, styrkjamál ofl ofl.  Þetta er mikil og krefjandi vinna, en um leið gefandi, því við erum að reyna að sjá fyrir okkur og móta famtíðina og hvert stefnir.

Eins og íbúar vita, er Strandabyggð með samning við innviðaráðuneytið um sértækan stuðning vegna erfiðrar fjárhagsstöðu.  Lagt er upp með áætlunartímabil til 2025 en þá á sveitarfélagið að hafa náð það sterkri stöðu að þessa sértæka stuðnings sé ekki lengur þörf. 

Strandabyggð er ekki eina sveitarfélagið í þessari stöðu.  Í dag eru alls 30 sveitarfélög á landinu með slíka samninga og/eða í nánu samstarfið við ráðuneytið.  Fyrir fjórum árum voru 12 sveitarfélög með slíka samninga.  Það hefur því hallað undan fæti hjá mörgum sveitarfélögum á síðasta kjörtímabili, sem eins og við vitum var mjög erfitt.  Það sem einkennir síðan stöðuna í ár, er mjög mikill halli á málaflokknum um málefni fatlaðs fólks. Óljóst er hvernig sú staða verður leyst.

Fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaga snýst auðvitað mikið um forgangsröðun aðgerða og ráðstöfun fjármagns.  Við búum við samfélagsmynd sem við höfum byggt upp og viljum helst halda í, sem m.a. byggir á nokkuð háu þjónustustigi.  En við þær aðstæður sem nú eru uppi, þarf að skoða alla hliðar.  Á nýafstaðinni Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, kom skýrt fram, að mörg sveitarfélög eru að endurskoða sína forgangsröðun, einblína á lögbundna þjónustu og starfsemi sem forgangsmál.  Sett eru spurningamerki við marga þjónustuliði sem áður þóttu sjálfsagðir, en eru í dag til endurskoðunar.  Þetta á sérstaklega við ef þessir þjónustuliðir eru ekki lögbundnir, en einnig í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu og sértækra samninga við ríkið. 


Sveitarstjórn Strandabyggðar er komin vel af stað með sína fjárhagsáætlanagerð.  Tveir vinnufundir eru að baki sem og heimsóknir í áhaldahús, veitustofnun, Sorpsamlagið og grunnskólann. Framundan eru heimsóknir í leikskólann og íþróttamiðstöðina.  Síðan mun sveitarstjórn funda með forstöðumönnum í næstu viku auk vinnufunda sem fylgja í kjölfarið.  

Ef þú kæri íbúi hefur spurningar eða ábendingar, ekki hika við að hafa samband.  Það má skrifa mér á netfangið thorgeir@strandabyggd.is eða hringja í 899-0020.

Áfram Strandabyggð!

Kveðja

Þorgeir Pálsson

oddviti

 

 

Ábendingar frá leikskólabörnum

Þorgeir Pálsson | 20. október 2022
« 1 af 4 »
Kæru íbúar Strandabyggðar,

Það var sérlega skemmtilegur hópur sem kíkti á skrifstofu sveitarfélagsins, með mjög vel ígrundaðar hugmyndir og ábendingar um uppbyggingu á leikskólalóðinni.  Og allt var þetta sett fram í máli og myndum.  Þarna voru m.a. hugmyndir um hjólagarð með alvöru húsi, alvöru búð og alvöru snakki, rafmagnsbíl sem krakkarnir keyra sjálf, köngulóarrólu, hús (plathús) þar sem maður ýtir á takka og þá hoppar maður, sandkassa með rauðum takka á múrsteini svo hann opnist, drullumall, göng sem hægt er að hjóla í gegnum, hjólabrettagarð, rennibraut þar sem maður rennur í hringi og rennibraut sem er löng og með hossum en fer ekki í hringi og margar aðrar góðar hugmyndir.  Mjög efnilegur hópur þarna á ferð. 

Myndirnar sýna krakkana á leiðinni með umslagið góða og svo þegar þau afhenda hugmyndirnar sínar. Hjördís Inga Hjörleifsdóttir, starfsmaður Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla, var með mér í móttökunefndinni.  Starfsfólk Lækjarbrekku og foreldrar barna á leikskólanum, hafa einnig komið að hugmyndavinnu um nýja leikskólalóð.

Takk fyrir komuna og þessa flottu vinnu krakkar!  

Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón