A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

HANS KLAUFI - Leikhópurinn Lotta

| 24. febrúar 2020


Leikhópurinn Lotta er að koma í heimsókn til okkar á Hólmavík og ætla að sýna Hans Klaufa í félagsheimilinu föstudaginn 28. febrúar kl 17:30. Góðir styrktaraðilar í kring um okkur hafa greitt niður miðaverðið! Vanalegt verð er 3.100 krónur en eingöngu 1.700 krónur á Hólmavík! Miðar eru því eingöngu seldir á staðnum hér. Það er því um að gera að taka alla fjölskylduna með á hágæða fjölskyldusöngleik hlaðinn húmor og gleði fyrir allann aldur.

Öskudagsball

| 20. febrúar 2020

Öskudagsball verður haldið í félagsheimilinu á Hólmavík miðvikudaginn 26. febrúar kl. 17:00.

Fundur um menntamál í Strandabyggð!

| 18. febrúar 2020
Við minnum á fundinn á morgun, miðvikudag  í Hnyðju, kl 17-19, sem Grunnskólinn á Hólmavík, Trappa og Strandabyggð standa fyrir.

Kristrún Lind Birgisdóttir frá Tröppu, mun fara yfir áherslur í starfi leik- og grunnskóla og hvernig unnið er eftir aðalnámskrá hvað þessi skólastig varðar.  Fundarstjóri er Þorgeir Pálsson.

Hér er kjörið tækifæri til að fræðast um þær áherslur og þau viðmið sem skólastarf á Hólmavík styðst við og ræða hvernig við getum eflt og stutt við skólastarf í Strandabyggð.

Við hvetjum foreldra, aðstandendur og aðra áhugasama um menntamál, til að mæta.

Hver á hvað?

| 13. febrúar 2020
Á vef Ríkisskattstjóra (www.rsk.is)  kemur fram, að "nú þurfa allir lögaðilar sem stunda atvinnurekstur hér á landi eða eru skráðir í fyrirtækjaskrá að afla upplýsinga um og skrá raunverulega eigendur sína og réttindi þeirra".

Frestur til að skila inn þessum upplýsingum er til 1. mars n.k. og má búast við sektum eftir þann tíma, hafi viðeigangi gögnum ekki verið skilað inn.

Við hvejum alla sem eru í forsvari fyrir félagasamtök, lögaðila í atvinnurekstri eða aðra sem falla undir þessa skilgreiningu, að kynna sér málið og má t.d. finna leiðbeiningar hér:  https://www.rsk.is/um-rsk/frettir-og-tilkynningar/frettatilkynning-vegna-skraningar-raunverulegra-eigenda

Ungmennaráð hittir sveitarstjórn

| 12. febrúar 2020
Ungmennaráð Strandabyggðar hitti sveitarstjórn og sveitarstjóra á fundi í gær, 11. febrúar í Hnyðju.  Þar var mikið rætt og skipst á skoðunum um ýmislegt; allt frá aðgengi að orkudrykkjum til heimsókna ungmennaráðs á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík.  Ungmennin ætla að heimsækja heilbrigðisstofnunina einu sinni í viku til að spjalla við vistmenn, spila og hafa gaman.

Fram kom á fundinum að Ungmennaráð vill virkja nemendur innan grunnskólans, efla nemendaráð og vera almennt virkar í að móta sitt umhverfi.  Rætt var um símabann, sem nemendur sjálfir settu á í skólanum þessa vikuna og þótti þeim öllum það gott fyrirkomulag.

Sveitarstjórn tók fagnandi á móti ungmennaráði og hvetur til fleiri heimsókna af þessu tagi.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón