A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Viltu taka þátt í að móta verkefnið; Brothættar byggðir í Strandabyggð?

| 04. febrúar 2020
Frestur til að skila inn tilnefningum, ábendingum eða framboðum íbúa í verkefnastjórn Brothættra byggða í Strandabyggð, hefur verið framlengdur til miðnættis föstudaginn 7. febrúar n.k.

Þetta er einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun sveitarfélagsins, taka þátt í umræðu um tækifæri og ógnanirsem blasa við okkur og móta um leið framtíð Strandabyggðar.

Vertu með!

Lubbi fer á barnabókasafnið

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 02. febrúar 2020
Sérstök opnun fyrir leikskólabörn og foreldra verður á Barnabókasafni mánudaginn 3. febrúar klukkan 16:00-17:00. 
Þá fer Lubbi á bókasafnið en Lubbi er íslenskur hundur sem safnar málbeinum. 
Alma Benjamínsdóttir les Lubbasögu klukkan 16:30 og Lubbaefni verður til sýnis.

Lubbi finnur málbein er málörvunarefni sem er hannað af Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur, en þær eru báðar talmeinafræðingar. 

Lestrarátak stendur nú yfir í leikskólanum og foreldrar eru hvattir til að vera duglegir að lesa fyrir börnin og með þeim. 
Góða kynningu á Lubba má finna á síðunni http://www.lubbi.is/

Bókasafnið er til húsa í Grunnskólanum á Hólmavík og er opið á skólatíma og á þriðjudögum 17:30-18:30.

Verkefni sveitarstjóra

| 31. janúar 2020

Janúar einkenndist af undirbúningi og upphafi verkefna, eins og gjarnan gerist í upphafi árs.  Ég hef fundað með nær öllum forstöðumönnum, farið yfir verkefni á fjárhagsáætlun og helstu verkefni hverrar deildar þar fyrir utan, því það er alltaf svo að hver deild eða stofnun sveitarfélagsins er ávallt með mun meira í gangi en það sem kemur fram í fjárhagsáætlun.  Ég mun svo fylgja þessum verkefnum eftir með mánaðarlegum forstöðumannafundum og eins fundum með hverjum forstöðumanni fyrir sig. 

Í janúar var líka gengið frá Starfsáætlun Strandabyggðar 2020, sem nú er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins  Starfsáætlunin er eins konar leiðarvísir fyrir starfsmenn sveitarfélagsins og aðra sem vilja kynna sér starfsemina.


Umhverfisátakið

Sveitarstjórn samþykkti gerð bílastæðis á Skeiðinu fyrir gangfærar vinnuvélar og ökutæki.  Nú er verið að klára reglur og ramma utan um notkun á þessu stæði og eftir það verður hægt að bjóða verktökum að nýta sér þetta stæði undir vinnuvélar og farartæki. 

40 bílar!

Það er gaman að segja frá því, að á síðasta á voru fjarlægð 40 farartæki úr þorpinu, af Skeiði og úr sveitinni.  Árið 2018 voru þetta 26 farartæki.  Þar að auki hefur Sorpsamlagið og eigendur sjálfir fjarlægt mikið að alls konar úrgangi, brotajárni og drasli, sem ekki var norhæft eða þörf fyrir lengur.  Þetta sýnir vel að umhverfisátakið skilar árangri.  Þegar vorar, einbeitum við okkur að gámasvæðinu og geymslusvæðinu og tökum betur til þar.


Hitaveitan

Það er mín von að álagsprófun geti hafist í næsta mánuði, þar sem samningar við landeigendur eru á lokastigi.  Álagsprófunin, sem mun standa yfir í um tvo mánuði, svarar síðan með afgerandi hætti vonandi, hvort raunhæft er að ráðast í uppbyggingu hitaveitu eða ekki.

Brothættar byggðir

Strandabyggð gekk nýlega í verkefni Byggðastofnunar; Brothættar byggðir.  Þetta verkefni á eftir að beina til okkar styrkjum í mótun og uppbyggingu verkefna, hugsanlega stofnun fyrirtækja og aukins samstarfs íbúa um að efla það atvinnulíf sem fyrir er í Strandabyggð.  Það verður gott að fá íbúa með okkur í þetta verkefni!

Veðrið og menningin

Veðrið er alltaf umræðuefni og í janúar hefur það mótað umræðuna og starfsemi sveitarfélagsins talsvert.  Fundir hafa frestast, skólaakstri og skólahaldi var frestað í nokkrar daga og margt annað pirrandi. En það var líka nokkuð um viðburði á sama tíma og við búum svo vel í Strandabyggð að hér er mikið og öflugt menningarlíf sem vegur sannarlega upp á móti vindinum. 

Að auki er ótrúlega mikið um ýmis verkefni, bréfaskriftir og samskipti sem gera hvern dag ólíkan þeim fyrri.  Dæmi um verkefni eru: endurskoðun gjaldskrár hafnarinnar, skipulagning á fundahaldi sveitarstjórnar, umsókn til Loftslagssjóðs, Brothættar byggðir, fundir í Brunavörnum Dala, Reykhóla og Stranda, umræða um byggðakvóta, Vegagerðin/vegamál ofl. ofl.


Ég hvet íbúa til að hafa samband með sínar hugmyndir, ábendingar og vangaveltur.  Það er enginn viðtalstími, bara mæta eða hringja.  thorgeir@strandabyggd.is eða 899-0020

Góða helgi!

 

Núna er komið að því.....................

| 28. janúar 2020

Er ekki upplagt að byrja árið á því að gera hugmyndina þína að veruleika? og koma henni jafnvel í framkvæmd? Þá hvetjum við, þig til að sækja um.

Nú er komið að fyrri úthlutun styrkja hjá Strandabyggð árið 2020.

Markmiðið er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtaks einstaklinga sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreytilegu mannlífi. Reglur. Styrkirnir eru upp að 100.000 þúsund krónum, ef sótt er um styrk umfram það skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið.

Umsóknareyðublað skal fyllt út og sent á tomstundafulltrui@strandabyggd.is 

 

Umsóknarfrestur er til 1.febrúar 2020 og úthlutun styrkja er svo 2.mars 2020

Sveitarstjórnarfundur 1299 í Strandabyggð - AUKAFUNDUR

| 25. janúar 2020

Sveitarstjórnarfundur 1299 í Strandabyggð

Fundur nr. 1299, AUKAFUNDUR, í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn mánudaginn 27. janúar 2020 kl 08.00 í Þróunarsetrinu.

 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

 

  1. Trúnaðarmál.

 

 

Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:

Jón Gísli Jónsson

Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir

Ásta Þórisdóttir

Guðfinna Lára Hávarðardóttir

Pétur Matthíasson

 

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón