Könnun meðal íbúa Strandabyggðar
Meira
Meistaranám iðnaðarmanna, almennur hluti, verður kennt á næsta skólaári, ef næg þátttaka fæst. Gert er ráð fyrir að nám fari fram síðdegis og kennt verði í gegnum fjarfundabúnað utan Skagafjarðar. Umsóknarfrestur er til 25. júní.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 455-8000.
Skólameistari.
Laugardaginn 15. júní verður haldinn hreinsunardagur á Hólmavík. Þá er kjörið tækifæri fyrir íbúa kauptúnsins að hreinsa í kringum hús sín og á opnum svæðum í hverfum sínum og sjá til þess að bærinn verði skínandi hreinn og fínn.
Forsvarsmenn fyrirtækja í bænum eru ennfremur hvattir til að hreinsa og fegra umhverfi sitt eins og mögulegt er.
Tökum á móti sumri með hreinum og snyrtilegum bæ.
Starfsmenn Áhaldahúss munu fara um bæinn á laugardaginn og hirða garðaúrgang og rusl á eftirfarandi tímum:
-14:00 Bláa hverfið
-15:00 Appelsínugula hverfið
-16:00 Rauða hverfið